Ríkið eignast Sjóvá að fullu gegnum Glitni og Íslandsbanka 8. júlí 2009 18:01
Fjármálaráðherra hefur í samráði við ríkisstjórnina ákveðið að taka þátt í endurskipulagningu á vátryggingastarfsemi Sjóvár. Ríkissjóður hefur keypt 73% hlut í Sjóvá gegnum dótturfélag Glitnis. Þar að auki á Glitnir sjálfur 18% og Íslandsbanki 9%. Fyrir hlut ríkisins eru greiddir 11,6 milljarðar kr. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að með aðkomu sinni hefur ríkissjóður aðstoðað við að tryggja hagsmuni almennings. Í þessu skyni hefur ríkissjóður selt SAT eignarhaldsfélagi hf sem er dótturfélag Glitnis, kröfur sem ríkissjóður eignaðist við fall viðskiptabankanna í október síðastliðnum. Meðal seldra krafna eru kröfur á Askar Capital dótturfélag Milestone samstæðunnar. Sala þessara krafna er mikilvægur liður í aðskilnaði vátryggingastarfsemi Sjóvár og fjárfestingu tengdri fasteignaverkefnum. Söluverð krafnanna er 11,6 milljarðar sem skulu greiðast innan 18 mánaða eða við sölu Sjóvár. Stefnt er að því að rekstur vátryggingafélagsins Sjóvár fari í formlegt söluferli á næstu mánuðum. Í greiðslufrestinum sem ríkissjóður veitir eru hlutabréfin sem SAT eignarhaldsfélag hf. eignast við endurskipulagningu Sjóvár veðsett til tryggingar skilvísri greiðslu en um er að ræða 73% hlut í vátryggingafélaginu Sjóvá. Sala þessara krafna er þáttur í þeirri vinnu sem fer fram í fjármálaráðuneytinu við að hámarka verðgildi þeirra eigna sem ríkissjóður fékk við fall bankanna í október 2008.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira