FME vísar grun um markaðsmisnotkun til ríkislögreglustjóra 8. júlí 2009 10:28
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur vísað máli vegna gruns um markaðsmisnotkun til ríkislögreglustjóra samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Í frétt um málið á vefsíðu FME segir að lögin sem vitnað er til fjalli um viðskipti eða tilboð um viðskipti sem gefa eða eru líkleg til að gefa framboð, eftirspurn eða verð fjármálagerninga ranglega eða misvísandi til kynna. Þá fjalli lögin einnig um svokölluð sýndarviðskipti, þ.e. viðskipti eða tilboð um viðskipti sem byggð eru á tilbúningi eða þar sem notuð eru einhver form blekkingar eða sýndarmennska. Í því tilfelli sem hér um ræðir áttu sér stað viðskipti, eða tilboð um viðskipti, fjármálafyrirtækis með hluti í tveimur félögum dagana 4. og 10. júní 2008 og 24. júlí 2008. Taldi Fjármálaeftirlitið starfshætti fjármálafyrirtækisins og tveggja starfsmanna þess er störfuðu við eigin viðskipti fjármálafyrirtækisins og við miðlun verðbréfa fyrir hönd viðskiptavina þess, fela í sér markaðsmisnotkun. Fólust fyrrgreindir starfshættir í því að tilboð fjármálafyrirtækisins um viðskipti með hluti í tveimur félögum voru hreyfð til, ýmist hækkuð sölutilboð þess eða lækkuð kauptilboð, rétt áður en tilboð voru gerð fyrir hönd viðskiptavinar. Leiddu starfshættirnir til þess að í einu tilviki hækkaði opinbert dagslokaverð bréfa í tilteknu félagi. Í öðru tilviki urðu viðskipti á hærra verði en ætla má að viðskiptavinurinn hefði fengið ef fjármálafyrirtækið hefði ekki hækkað sölutilboð sitt nokkrum mínútum áður en lagt var fram kauptilboð viðskiptavinarins. Í þriðja tilvikinu urðu viðskipti á lægra verði en ætla má að fjármálafyrirtækið hefði fengið ef sölutilboð viðskiptavinarins hefði verið sett inn í tilboðabókina áður en kauptilboð fjármálafyrirtækisins voru lækkuð. Það sem fyrst og fremst gerði slíka starfshætti framkvæmanlega að mati Fjármálaeftirlitsins var að sömu starfsmenn fjármálafyrirtækisins fengust á sama tíma við viðskipti fyrir eigin reikning fjármálafyrirtækisins og miðlun verðbréfa fyrir viðskiptavini þess. Með vísan til nefndra lagaákvæða og atvika málsins ákvað Fjármálaeftirlitið að vísa bæri málinu til ríkislögreglustjóra.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira