Ríkið orðið fasteignarisi Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 17. maí 2009 18:38
Ríkið mun verða einn stærsti eigandi fasteigna á höfuðborgarsvæðinu eftir fall Saxbyggs. Eignirnar telja Smáralind, fasteignir Húsasmiðjunnar og 55 fasteignir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Stjórnendur Saxbygg óskuðu eftir því á föstudag að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Saxbygg var í helmingseign Saxhóls, sem er kennt við Nóatúnsfjölskylduna, og BYGG, byggingarfélags Gunnars og Gylfa. Nafni félagsins hefur verið breytt í Icarus ehf. Verðmætasta eign félagsins var 5,7% hlutur í Glitni en sá hlutur varð verðlaus við fall bankans og eftir það varð reksturinn þungur. Saxbygg var einnig stærsti eigandi EIK properties en Íslandsbanki á einnig hlut í því félagi. EIK var annað stærsta fasteignafélag hér á landi á eftir Landic Properties. Dótturfélög EIKar eiga t.a.m. ráðandi hlut í Smáralind, fasteignir Húsasmiðjunnar, fasteignir í Noregi og 55 fasteignir í miðborg Reykjavíkur, í póstnúmerunum 105 og 108 og víðar. Fasteignirnar sem um ræðir eru t.d. Austurstræti 5, 7 og 17, Hafnarstræti 5,8 og 7 og Bankastræti 5. Í tilkynningu frá Saxbygg kom fram að engar skuldir séu í félaginu aðrar en við viðskiptabanka. Það má því gera ráð fyrir að ríkisbankarnar munu eignast hlut Saxbyggs í EIK properties og þar með verða meðal stærstu eigenda fasteigna í miðborg Reykjavíkur.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira