Telur talsverðan áhuga á leið Seðlabankans 6. maí 2009 11:25
Greining Íslandsbanka telur líklegt er að talsverður áhugi muni reynast af hálfu íslenskra fyrirtækja á þeirri leið sem Seðlabankinn auglýsti í morgun og snýr að því að skipta út krónu/ríkisbréfum í eigu erlendra aðila í langtímalán hjá þeim fyrirtækjum sem hafa tekjur í erlendri mynt. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að þessi leið henti vel fyrirtækjum sem hyggjast ráðast í fjárfestingar á næstunni innanlands sem hafa í för með sér umtalsverðan krónukostnað en skila í kjölfarið gjaldeyristekjum. Væntanlegt álver í Helguvík og orkuöflun því tengd gæti verið dæmi um slíkt. Meiri óvissa ríkir um framboð af lánsfé í þennan farveg. Þeir erlendu aðilar sem eiga krónueignir hérlendis virðast margir kjósa að halda þeim í seljanlegum skammtímaeignum eða innistæðum, og gætu því verið tregir til að festa endurgreiðsluferil þeirra fjármuna til langs tíma. Hins vegar er ekki loku fyrir skotið að aðrir, þolinmóðari fjárfestar vildu nýta sér þessa leið til langtímafjárfestinga á Íslandi og myndu þeir þá væntanlega kaupa krónueignir af skammtímafjárfestum á erlendum markaði til þess arna. Gengi krónu á erlendum markaði hefur hækkað talsvert gagnvart evru undanfarið, sem gæti verið til marks um slíka þróun. Kostar evran nú 208 kr. í miðlarakerfi Reuters, sem er lægsta verð evrunnar í krónum frá því fyrir miðjan mars síðastliðinn.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira