Kröfur í þrotabú Atorku hátt í 56 milljarðar 8. desember 2009 14:06
Kröfur í bú Atorku nema hátt í 56 milljörðum króna. Eftir tvo daga munu kröfuhafar greiða atkvæði um nauðasamninga sem fela í sér að 35 milljarðar verða afskrifaðir en afgangnum umbreytt í hlutafé og lán. Þetta kom fram í hádegisfréttum RUV. Þar sagði að í fyrrasumar fyrir hrun var markaðsvirði Atorku ríflega 20 milljarðar króna en hluthafar hafa tapað öllu sínu. Þeir voru á fimmta þúsund talsins. Helstu kröfuhafar í félagið eru bankarnir, gömlu og nýju. Nærri helmingur krafnanna er frá nýja Landsbankanum og Landsbanknum há eff. Íslandsbanki á 14% krafna og Glitnir tíu. Arion banki á ríflega 4% allra krafna. Nauðasamningarnir fela í sér að langstærstum hluta krafnanna verði breyttt í hlutafé. Þar er miðað við rýrnun krafnanna uppá 30 milljarða króna. Með því er metið að 40% fæst upp í kröfurnar en hlutfallið er væntanlega lægra þar sem kröfrunar eru nærri sex milljörðum hærri en áætlað er í frumvarpi. Nokkur óvissa ríkir um virði eigna Atorku en helsta eignin er meirihluti í Prómens, félagi sem orðið hefur fyrir verulegum áföllum og glímir við miklar skuldir. Aðrar eignir í skráðum félögum hafa rýrnað um helming frá lokafjórðungi síðasta árs. Þá á Atorka 40% í Geysi Green Energy sem telst verðlítil eign, að því er segir í frétt RUV.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira