Stjórnendur búast við enn frekari verslunarsamdrætti 13. júlí 2009 15:09 Frá Kringlunni.
Horfur eru á að verslun gæti dregist enn frekar saman á næstunni og lítilsháttar fækkun verði í fjölda starfsmanna. Þetta á sérstaklega við um litlar verslanir. Þetta kom fram í niðurstöðum könnunar sem Rannsóknasetur verslunarinnar gerði nýlega meðal stjórnenda í verslun. Sambærileg könnun var gerð fyrir ári síðan. Þá mat um helmingur stjórnenda í verslun horfur stöðugar það sem eftir lifði ársins og fjórðungur átti von á samdrætti. Nú telja 61% stjórnenda að búast megi við minni veltu á síðari helmingi ársins. Þeir sem núna telja að veltan muni minnka seinni helming ársins miðað við sama tíma síðasta árs telja að samdrátturinn verði að meðaltali um 27,5% að raunvirði. Allflestir sem tóku þátt í könnuninni töldu að starfsmannafjöldi yrði óbreyttur á seinni hluta þessa árs. Útlitið er þó heldur dekkra í augum stjórnenda og eigenda lítilla verslana því um þriðjungur þeirra telja að fækka þurfi starfsmönnum um að jafnaði um 32,5%. Tveir af hverjum þremur stjórnenda lítilla verslana telja hins vegar að starfsmannafjöldi verði óbreyttur út árið. Stjórnendur stórra verslana eða verslanakeðja töldu í 71% tilvika að starfsmannafjöldi yrði óbreyttur út árið, 22% að starfsmönnum fækki og 7% að fjölgun yrði. Þeir sem töldu að fækka þyrfti starfsmönnum í stærri verslunum áætla að sú fækkun verði að meðaltali um 10% en þeir sem sögðust áætla fjölgun töldu hana verða um 7,5% að meðaltali. Spurt var hvort gera mætti ráð fyrir auknum umsvifum verslunarinnar á seinni helming þessa árs, til dæmis með fjölgun eða stækkun verslana eða samdrætti. Langflestir gerðu hvorki ráð fyrir auknum umsvifum né samdrætti eða 79% svarenda. Um 18% töldu að verslunum myndi fækka eða samdráttur yrði á síðari hluta ársins og 3% að umsvif sín myndu aukast. Þá leiddi könnunin í ljós að 46% svarenda telja að samkeppni í veslun muni aukast á seinni hluta ársins, 33% að hún verði óbreytt og 21% að hún minnki þegar líður á árið.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira