Vöruskiptin orðin 108,7 milljörðum hagstæðari en í fyrra 30. október 2009 09:05
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu níu mánuði ársins var 108,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma í fyrra . Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 43,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 40,6 milljarða króna. Vöruskiptin í september voru því hagstæð um 3,1 milljarð króna. Í september 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 9,7 milljarða króna á sama gengi. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að fyrstu níu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 341,2 milljarða króna en inn fyrir 297,5 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 43,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 64,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 128,7 milljörðum eða 27,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,5% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,5% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og sjávarafurðum. Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 237,4 milljörðum eða 44,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira