Tilfærslur með hlutabréf VÍS gætu bent til sölu Sigríður Mogensen skrifar 19. júlí 2009 18:41
Tilfærslur með hlutabréf í tryggingarfélaginu VÍS gætu bent til þess að eigendurnir séu að undirbúa sölu. Fréttastofa hefur undir höndum samþykkt Vátryggingafélags Íslands frá 3.apríl 2009. Þar kemur fram að nýr hlutabréfaflokkur hafi verið stofnaður, B - flokkur, utan um nýtt hlutafé að fjárhæð 100 milljónir króna. Hlutafé VÍS skiptist því nú í tvo flokka, A-hluti og B-hluti. A hlutir eru að nafnvirði um tveir og hálfur milljarður og B-hlutir að nafnvirði 100 milljónir króna. VÍS er dótturfélag Exista, sem er að stórum hluta í eigu bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssonar, kenndir við Bakkavör. Upplýsingafullrúi Exista staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að Exista væri eigandi hins nýja hlutafjár. Því er um að ræða 100 milljónir króna sem flytjast frá Exista til dótturfélagsins VÍS. Að öðru leyti vildi félagið ekki tjá sig um málið. Það sem vekur athygli við þetta er að hluthafar í B flokki fara samkvæmt samþykktinni með 75% atkvæðismagn í félaginu - með öðrum orðum ráða þeir yfir þremur fjórðu í félaginu. VÍS er því áfram alfarið í eigu Exista, sem á báða hlutabréfaflokkana. Vegna þeirrar staðreyndar er erfitt að átta sig á tilgangnum með nýju samþykktinni. Hvers vegna að stofna nýjan hlutabréfaflokk um 100 milljónirnar sem koma til viðbótar inn í félagið ef eignarhaldið breytist ekki? Til að leitast við svara þessu hafði fréttastofa samband við nokkra lögfræðinga í dag sem sérhæfa sig í félagarétti. Enginn þeirra vildi tjá sig um málið, enda vildu þeir ekki vera með getgátur. Hins vegar fengust þau svör að ein helsta ástæða þess að félög stofna nýjan hlutabréfaflokk hjá dótturfélögum sínum sé sú að í bígerð sé að selja félagið eða breytingar séu framundan á eignarhaldinu. Exista stendur nú í viðræðum við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu og munu þær vera á viðkvæmu stigi.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira