Förum ekki undir kostnaðarverð segir forstjóri VALITOR Gunnar Örn Jónsson skrifar 1. júlí 2009 13:05 Höskuldur Ólafsson, forstjóri VALITOR.
Eins og kom fram á Vísi fyrir stundu fóru fulltrúar Samkeppniseftirlitsins í starfsstöðvar VALITOR og framkvæmdu húsleit vegna kvörtunar sem eftirlitinu hafði borist frá samkeppnisaðilanum, Borgun. Ekkert til í þessu, segir Forstjóri VALITOR. „Borgun telur að við séum að rukka lægri þjónustugjöld til kaupmanna, á svokölluðum færsluhirðingarmarkaði. Sá markaður er okkar þjónusta til söluaðilanna, það er að segja þjónusta við kaupmenn," segir Höskuldur Ólafsson, forstjóri VALITOR og tekur ennfremur fram að þessi kvörtun Borgunar tengist almennum kortanotendum ekki á neinn hátt. Höskuldur telur þessar fullyrðingar ekki eiga við nein rök að styðjast. „Við vitum okkar stöðu og vitum hvernig við eigum að haga okkur á markaði. Við verjum einfaldlega okkar stöðu og bjóðum lægra verð í einhverjum tilfellum, það er ekkert sem bannar okkur að lækka verðið í einstaka tilfellum en við förum engan veginn undir kostnaðarverð og fylgjum að öllu leyti samkeppnislögum. Það er mjög hörð samkeppni á markaðinum og ég útiloka ekki að Borgun sé að reyna að nýta þessar aðgerðir sínar gegn okkur í samkeppnislegum tilgangi," sagði Höskuldur Ólafsson, forstjóri VALITOR í samtali við Vísi. Kollegi Höskuldar hjá Borgun var ekki á þeim buxunum að ræða málið við fréttamenn á þessum tímapunkti. „Eðli málsins samkvæmt og í samræmi við rannsóknarhagsmuni þá get ég því miður ekki tjáð mig neitt um þetta mál að svo stöddu," sagði Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, þegar Vísir innti hann eftir ástæðum kærunnar til Samkeppniseftirlitsins.
Tengdar fréttir Samkeppniseftirlitið fór í húsleit hjá VALITOR Í morgun fóru fulltrúar Samkeppniseftirlitsins í starfsstöðvar VALITOR að Laugavegi 77 í Reykjavík og framkvæmdu húsleit vegna kvörtunar sem eftirlitinu hafði borist frá keppinautnum Borgun um meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. 1. júlí 2009 12:18 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira
Samkeppniseftirlitið fór í húsleit hjá VALITOR Í morgun fóru fulltrúar Samkeppniseftirlitsins í starfsstöðvar VALITOR að Laugavegi 77 í Reykjavík og framkvæmdu húsleit vegna kvörtunar sem eftirlitinu hafði borist frá keppinautnum Borgun um meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. 1. júlí 2009 12:18