Landsvirkjun þarf að greiða 32 milljarða í ár og á næsta ári 1. júlí 2009 11:58
Samkvæmt upplýsingum frá Bloomberg þarf Landsvirkjun að standa skil á ríflega 250 milljónum dollara eða tæpum 32 milljörðum kr. á þessu og næsta ári í afborganir af lánum og skuldabréfum, og að auki greiða vexti. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um lækkun Standard & Poors á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Lækkunin þýðir að lánshæfið fer úr fjárfestingarflokki og niður í áhættuflokk. Á vef Landsvirkjunar kemur fram að lækkun lánshæfiseinkunnarinnar hefur ekki áhrif á vaxtakjör eldri lána fyrirtækisins og engin lán gjaldfalla vegna þessa. Hins vegar má vera ljóst að á brattann verður að sækja fyrir Landsvirkjun að sækja sér nýja fjármögnun næsta kastið, a.m.k. út fyrir landsteinana. Fyrirtækið virðist þó hafa talsvert borð fyrir báru hvað þetta varðar. Þann 19. júní síðastliðinn gerði Landsvirkjun og íslenska ríkið með sér viðbúnaðarsamning á þann veg að skorti fyrirtækið fjármagn til að mæta greiðslum vegna lána mun Seðlabankinn leggja til gjaldeyri og Landsvirkjun mun á móti afhenda bankanum krónur eða skuldabréf. Samningurinn er í gildi næstu tvö ár og hefur Landsvirkjun aðgang að 300 milljónum dollara með þessum hætti. Til viðbótar kemur fram á vef Landsvirkjunar að lausafé fyrirtækisins sé um þessar mundir 90 milljónir dollara og að auki hafi fyrirtækið aðgang að erlendu veltiláni sem fjórtán erlendar fjármálastofnanir standa að. Landsvirkjun segir ofangreindan aðgang að lausafé, ásamt fé frá rekstri, duga til greiðslu vaxta og afborgana út árið 2010 án þess að gripið sé til viðbúnaðarsamningsins. Á hinn bóginn þarf einnig að fjármagna allháar upphæðir næstu ár þar á eftir og gæti þá reynt á lánshæfi Landsvirkjunar á alþjóðlegum mörkuðum. Ljóst er einnig að ef ráðast á í verulegar framkvæmdir á vegum fyrirtækisins í tengslum við frekari uppbyggingu á orkufrekum iðnaði næsta kastið eykst fjárþörfin að sama skapi og gæti fyrirtækið þurft að leita fjármögnunar innanlands í auknum mæli ef sú verður raunin, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira