Kaupþingsforstjórar með kúlulán 1. júlí 2009 08:18
Kaupþingsforstjórarnir fyrrverandi, þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson, voru árið 2006 með lán hjá Kaupþingi upp á samtals 5,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í DV í dag en blaðið hefur lánabók bankans frá þessum tíma undir höndum. Lánin voru, eins og önnur kúlulán starfsmanna bankans sem fjallað hefur verið um, notuð til hlutabréfakaupa í bankanum. Hreiðar Már var með sitt lán, 2,7 milljarða, í hlutafélaginu Hreiðar Már Sigurðsson ehf. Sigurður er hins vegar skráður persónulega fyrir sínu láni sem er upp á 2,6 milljarða. Blaðið bendir á að þeir Sigurður og Hreiðar hafi samkvæmt lánabók bankans verið í öðru og þriðja sæti á lista í lánabókinni sem merktur er „Stærsta áhættutaka gagnvart lögaðilum." Í fyrsta sæti á þeim lista með lán upp á 4,5 milljarða er fyrirtækið UK Fisheries Ltd. sem er dótturfélag Samherja. Í DV er einnig bent á að Hreiðar Már Sigurðsson ehf. hafi samkvæmt ársreikningi félagsins 2007 verið skráð fyrir hlutum í Kaupþingi sem námu 6,4 milljörðum króna og því sé ljóst að Hreiðar Már hafi fengið frekari lán í bankanum til hlutabréfakaupa. Ekki er hins vegar ljóst hvort eða hve mikið Sigurður hafi fengið að láni til viðbótar frá 2006. Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, fékk einnig lán til hlutabréfakaupa í bankanum árið 2006, upp á 2,3 milljarða króna. Magnús er enn forstjóri Kaupþings í Lúxemborg sem nýlega var yfrtekið af fjárfestingasjóðnum Blackfish Capital.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira