Bagger sagður krónískur lygari 11. janúar 2009 12:18
Danska lögreglan trúir ekki framburði fjársvikamannsins Stein Baggers. Hann er sagður krónískur lygari og segir aðstoðarsaksóknari allt eins líklegt að Bagger hafi grafið hluta af þýfinu í eyðimörkinni í Nevada meðan hann var á flótta í Bandaríkjunum. Fall Stein Bagger var hátt. Hann fór frá því að vera gulldrengur í meintan glæpamann nánast á einni nóttu. Hann var framkvæmdastjóri IT Factory en það fyrirtæki var lýst gjaldþrota eftir að upp komst um svikamyllu hans. Um 90% tekna fyrirtækisins reyndust vera byggðar á svikum Baggers sem m.a. falsaði undirskrift stjórnarformanns fyrirtækisins.Talið er að hagnaður Baggers af svindlinu hafi skilað honum milljörðum í eigin vasa. Málið var samstundis kært til lögreglu en þá var Bagger horfinn. Í kjölfarið var hann eftirlýstur af Interpol. Bagger gaf sig svo fram við yfirvöld í Los Angeles í byrjun desember eftir að hafa ferðast þvert yfir Bandaríkin. Hann var svo framseldur til Danmerkur en þar sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Bagger þykir samvinnuþýður en útskýringar hans eru ekki teknar trúanlegar. Honum er lýst sem krónískum lygara. Hann hefur m.a. haldið því fram að glæpamenn af tyrkneskum og pakistönskum uppruna hafi neytt sig út á glæpabrautina. Þá þykir það ekki trúlegt að Bagger hafi ekki verið í samskiptum við vitorsmenn sína á meðan hann var á flótta auk þess sem ekki komið fram hvað hann var að gera í Bandaríkjunum. Aðstoðarsaksóknari í málinu telur allt eins líklegt að hann hafi grafið peningabúnt í eyðimörkinni í Nevada. Bagger hefur sjálfur viðurkennt að hafa eytt sönnunargögnum, t.a.m. tölvupósti.
Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira