Erlendir sérfræðingar: Skref í rétta átt 20. júlí 2009 13:25
Þeir erlendu sérfræðingar sem þegar hafa tjáð sig um samkomulagið um endurfjármögnun bankana segja að um sé að ræða skref í rétta átt. En mikið þurfi að koma til í viðbót ef koma á íslensku efnahagslífi á lappirnar að nýju. „Þetta er skref í rétta átt," segir Lars Christensen forstöðumanni nýmarkaðasviðs Danske Bank í samtali við börsen.dk. „Það er ekkert bankakerfi til staðar á Íslandi og þeir eru að reyna að koma því á laggirnar. Það er í þágu erlendra kröfuhafa að Ísland eignist starfhæft bankakerfi. Endurfjármögnunin er nauðsynleg." Harald Magnus Andreassen aðalhagfræðingur First Securities segir einnig að um skref í rétta á sé að ræða en raunar bara lítið skref eins og hann orðar það í samtali við vefsíðuna e24.no. „Þeir verða að koma upp starfandi bankakerfi. Án þess verður erfitt að koma efnahagslífinu í gang. En það verður engin vöxtur að ráði á Íslandi þrátt fyrir að bankakerfið komist í gang." Aðspurður um síðustu setningu sína segir Andreassen að orsök vandamála Íslendinga sé alvarlegt neyslufyllerí bæði heimila og fyrirtækja sem var mögulegt í skjóli þess aðgangs að lánsfé sem Íslendingar höfðu. „Þetta eru vandamál sem tekur langan tíma að laga," segir Andreassen. Það kemur hvorki Andreassen né samstarfsmanni hans Pål Ringholm á óvart að reikningurinn til íslenskra skattgreiðenda við endurfjármögnunin verður mun minni en talið var að hann yrði s.l. haust. Í fyrstu hafi verið talið að allt væri glatað en síðan hafi annað komið í ljós. „Áætlanir þær sem gerðar voru í kjölfar bankahrunsins voru óraunverulega svartsýnar," segir Ringholm. „Við höfum séð það áður að tap sem er áætlað við verstu kringumstæður minnkar þegar frá líður. Hinsvegar liggur fyrir að fyrri eigendur hafa tapað öllu sínu og fjárhæðirnar verða stjarnfræðilegar, langtum stærri en við höfum séð í öðrum bankahrunum." Þeir félagar eru síðan sammála um að besta fréttin í dag sé að íslenskir skattgreiðendur þurfa ekki að borga eins mikið til bankana og áður var talið. Í því sambandi má nefna að talan 385 milljarðar kr. var nefnd s.l. haust en í dag gætu þetta orðið 198 milljarðar kr. ef allt fer á besta veg.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira