Erlend skuldastaða þjóðarbúsins 198% af landsframleiðslu Gunnar Örn Jónsson skrifar 15. júlí 2009 15:08 Seðlabankinn kynnti skuldastöðu þjóðarbúsins fyrir fréttamönnum í dag.
Heildarskuldir þjóðarbúsins í erlendri mynt nema 2.832 milljónum króna samkvæmt mati Seðlabankans sem kynnt var í dag. Seðlabankinn býst við að verg landsframleiðsla muni nema 1.427 milljónum króna á þessu ári. Miðað við þessar tölur er hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu rúmlega 198 prósent. Eins og komið hefur fram á Vísi og Stöð 2 er ein meginforsenda áætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sú, að erlend skuldastaða þjóðarbúsins við lok árs 2009 myndi vera af stærðargráðunni 160 prósent af vergri landsframleiðslu Íslands. Þetta mat Seðlabankans er því afar athyglisvert í ljósi þess að skuldir ríkisins hafa verið taldar um 200 prósent. Í dag staðfesti Seðlabankinn að heildarskuldir þjóðarbúsins nemi áðurnefndum 198 prósentum af vergri landsframleiðslu. Þær skuldir innihalda skuldir ríkisins sem nema 1.520 milljónum króna eða tæplega 107 prósentum af vergri landsframleiðslu fyrir árið 2009. Seðlabankinn tekur sérstaklega fram í mati sínu að útreikningar bankans eru mjög háðir framvindu efnahagsmála á heimsvísu, sérstaklega hvað varðar gengisáhrif. Gengisáhrifin hafa mikil áhrif á hlutfallslega greiðslubyrði miðað við landsframleiðslu í krónum talið. Bankinn segir að talsverð óvissa ríki um þróun hagvaxtar sem mun hafa bein áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira