Mosley blæs á Formúlu 1 krísu 15. maí 2009 17:30 Toyota og Red Bull eru meðal liða sem hafa hótað að hætta í Formúlu 1 á næsta ár.
Forseti FIA, Max Mosley segir að umræða um að Formúlu 1 sé í krísu eigi ekki viði rök að styðjast. Hann fundaði með Formúlu 1 liðum í dag, en ekkert samkomulag náðist á milli samtaka Formúlu 1 liða og FIA. Engu að síður telur Mosley litla hættu á því að Formúlu 1 lið sem hafa hótað að hætta í Formúlu 1 muni gera slíkt. Fimm keppnislið undir hatti FOTA, samtaka Formúlu 1 liða hafa sagt að þau muni ekki keppa eftir nýjum reglum FIA um rekstrarkostnað. Fundur í dag, í London var til að lægja öldurnarnar á milli FIA og FOTA. "Ég hef ekki trú á því að þessi lið hætti. Menn segja að það sé krísa. En það er ekki krísa í Formúlu 1. Ný lið sem ætla sér að keppa í Formúlu 1 þurfa að vita stöðuna og við verðum að fara taka ákvörðun í þessum málum", sagði Mosley eftir fundinn í dag. Ferrari lagði í dag fram kæru fyrir frönskum dómstólum á framgang FIA varðandi næsta keppnistímabil. Ferrari segir að ákvæði í samningi við FIA leyfi ekki þær fyrirætlanir FIA sem í gangi eru. Sjá nánar um málið
Mest lesið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Blikar áfram með fullt hús stiga Körfubolti „Bara feginn að við fundum þó leið“ Körfubolti Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum Körfubolti Dagskráin í dag: Doc Zone, frábærir leikir í enska og Bónus-deild kvenna Sport Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira