Viðskipti innlent

Tryggingamiðstöðin greiddi 144% arð af hagnaði 2006

Tryggingamiðstöðin greiddi hlutfallslega hæstan arð af hagnaði sínum árið 2006 eða 144%. Hagnaðurinn nam 696 milljónum kr. en arðgreiðslan 999 milljónum kr. Arðgreiðsla Sjóvár á þessu ár nam 61% af hagnaði eða 7,3 milljörðum kr. af hagnaði upp á tæplega 12 milljarða kr. VÍS greiddi svo hlutfallslega minnst eða 29%.

Þetta kemur fram á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum síðastliðna helgi um arðgreiðslur vátryggingafélaga og hlutfall þeirra af hagnaði, telur Fjármálaeftirlitið rétt að birta upplýsingar um hagnað og arðgreiðslur þriggja stærstu vátryggingafélaganna vegna áranna 2006-2008.

Þegar arðgreiðslur eru bornar saman við hagnað er rétt að hafa í huga að ákvörðun um arðgreiðslur er tekin á aðalfundum vátryggingafélaga og er þá miðað við afkomu ársins á undan. Þannig voru til dæmis arðgreiðslur vegna ársins 2006 ákveðnar á aðalfundum félaganna í ársbyrjun 2007 þegar árið 2006 var gert upp.

Rétt er einnig að hafa í huga að samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi er heimilt að greiða yfirfærðan hagnað frá fyrri árum, enda sé ljóst að félagið uppfylli kröfur um tilskilið lágmarksgjaldþol, þess hafi verið gætt að leggja til hliðar nægilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og að settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu þeirra hafi verið fylgt.

Öll félögin þrjú greiddu arð vegna ársins 2006 og að meðaltali námu arðgreiðslurnar 55% af hagnaði. Einungis eitt af félögunum greiddi arð vegna ársins 2007 og enginn arður var greiddur vegna ársins 2008.

Þetta eina sem greiddi arð 2007 var Tryggingamiðstöðin og nam greiðslan 48% eða 2.1 milljarði kr. af hagnaði upp á tæpa 4,4 milljarða kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×