Viðskipti innlent

Straumur selur eQ bankann í Finnlandi

Straumur hefur selt finnska bankann eQ Bank. Söluverðið nemur ríflega 37 milljónum evra eða um 6,3 milljörðum kr.

Í tilkynninmgu segir að kaupandinn sé Nordnet Group AB sem er sænskt eignastýringarfyrirtæki, skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi. Salan er háð samþykki fjármálaeftirlita í Finnlandi og Svíþjóð.

Viðskiptin eiga sér stað að undangengnu ríflega tveggja mánaða uppboðsferli sem hafði það að markmiði að hámarka söluandvirði eignarinnar. Lögð var áhersla á að tryggja gagnsæi og jafnfræði meðal bjóðenda og var hæsta tilboði tekið.

HLP Corporate Finance, finnskt ráðgjafafyrirtæki, hafði umsjón með söluferlinu fyrir Straum en Roschier veitti lögfræðiráðgjöf.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×