Viðskipti innlent

Kaupþing endurgreiðir öll innlán í erlendum útibúum

Um leið og Kaupþing hefur lokið við að endurgreiða þýskum eigendum Edge reikninga þar í landi hefur bankinn greitt öll innlán í erlendum útibúum móðurfélagsins.

Þetta kemur fram í uppfærðri skýrslu skilanefndar Kaupþings sem birt er á netinu. Þar segir: „Hinn 22. júní tilkynnti Kaupþing að endurgreiðslur hefðu hafist þegar Bankinn sendi greiðslufyrirmæli til þýskrar fjármálastofnunar um að endurgreiða innstæður um 20.000 viðskiptavina. Endurgreiðslur héldu áfram út júní og er vonast til að þær berist til ríflega 34.000 viðskiptavina Edge á næstu vikum.

Þegar þessi endurgreiðsla hefur farið fram mun Kaupþing banki hafa endurgreitt öll innlán sem skilgreind voru sem forgangskröfur skv. íslenskum lögum, það er öll innlán í erlendum útibúum móðurfélagsins."

Í skýrslunni er einnig rætt um fjárhagsstöðu Kaupþings og nánustu framtíð en eins og fram hefur komið í fréttum hefur Fjármálaeftirlitið (FME) veitt lokafrest til endurskipulagningar bankanna þann 17. júlí.

Um þetta segir í skýrslunni: „Vegna leiðréttingar á ráðstöfun eigna og skulda í samræmi við ákvörðun FME hækkuðu lán Kaupþings til viðskiptavina um u.þ.b. 190 milljarða íslenskra króna að nafnvirði, þar af voru um 90 milljarðar óveðsettir. Þetta ætti að öðru óbreyttu að leiða til þess að upphæð fjármálagerningsins lækki."

Hvað aðrar fjármálahreyfingar varðar segir í skýrslunni að vegna lokunar og sölu dótturfélagsins í Svíþjóð hækkuðu lán Kaupþings til viðskiptavina um u.þ.b. 110 milljarða íslenskra króna, en fjárfestingar í dótturfélögum og víkjandi lán Kaupþings til dótturfélagsins sem bókað var sem lán til lánastofnana lækkaði um sömu upphæð.

"Vegna sölu á tilteknum eignum hafa lán til viðskiptavina lækkað um u.þ.b. 18 milljarða íslenskra króna að nafnvirði og lausafjárstaðan aukist á móti. Þó verður að taka tillit til þess að eignirnar seldust ekki allar á nafnvirði.

Vegna endurgreiðslna lána hefur heildarupphæð lána til viðskiptavina lækkað og sjóðsstaðan batnað sem því nemur."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×