Spáir lítilsháttar lækkun á ársverðbólgunni 14. september 2009 12:05
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,7% í september. Ef spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka lítillega, úr 10,9% í 10,7%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að áhrif útsöluloka verða talsverð í septembermælingu VNV og vega í heild til 0,5% hækkunar að mati greiningarinnar. Þá koma áhrif af álagningu vörugjalda á ýmsa flokka matvörur fram í september og vega til 0,2% hækkunar á VNV samkvæmt spánni. Húsnæðisliður vísitölunnar mun að mati greiningarinnar vega til 0,1% lækkunar hennar, þótt óvissa um þennan lið sé raunar talsverð. Þá mun lækkun eldsneytisverðs undanfarið vega upp áhrif af hækkun á verði nýrra ökutækja samkvæmt spá okkar, en aðrir liðir vísitölunnar að jafnaði hækka lítillega. Að því gefnu að gengi krónunnar gefi ekki verulega eftir á næstunni mun draga allhratt úr hækkunartakti VNV það sem eftir lifir árs og þar með verðbólgunni. Gerir greiningin ráð fyrir 1,5% hækkun VNV til áramóta, að september meðtöldum. Á sama tíma detta miklir hækkunarmánuðir út úr 12 mánaða takti verðbólgunnar og mun hún því hjaðna hratt á þann mælikvarða. Ef spáin gengur eftir verður verðbólga komin undir 6% í árslok. Hver þróun vísitölu neysluverðs verður á næsta ári veltur að stórum hluta á þróun krónunnar og því hve mikill hluti þeirra skattahækkana sem vænta má um áramót verður í formi neysluskatta. Áhrif gengisbreytinga í spánni fyrir árið 2010 eru fremur væg, en spáin hljóðar upp á 1,2% verðbólgu yfir árið. Gríðarleg óvissa er hins vegar um hver gengisþróun muni verða eftir því sem áætlun um afléttingu gjaldeyrishafta vindur fram og ber að skoða verðbólguspána fyrir næsta ár í því ljósi. Einnig er ekki loku fyrir það skotið að stjórnvöld kjósi að hækka neysluskatta verulega um áramótin, sem gæti leitt til talsverðrar hækkunar VNV í upphafi næsta árs. Að þessum þáttum slepptum mun hins vegar innlendur verðbólguþrýstingur verða með minnsta móti á komandi misserum, enda teljum greiningin að fasteignaverð eigi enn eftir að lækka og að allangt sé í að draga fari verulega úr slaka á vinnumarkaði.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira