Mikil leynd yfir rannsókninni á Al Thani kaupunum 24. maí 2009 15:10 Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari um bankahrunið.
Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari um bankahrunið segir að rannsókn á kaupum sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi hafi ekki hafist með húsleitum á föstudaginn. Rannsóknin hafi staðið lengi yfir og slóð peninga sé ekki svo auðveldlega afmáð. Hann vill lítið gefa upp um næstu skref sem hann segir geta skaðað rannsóknina. Hann segir þó að á næstu dögum verði ákveðið hvort gögnum verði skilað aftur eða þau haldlögð í lengri tíma. „Ég get lítið sagt til um hvað við erum að gera nákvæmlega núna. Við höfum verið að vinna úr þessum gögnum og ég get ekkert sagt um hversu margir verða yfirheyrðir eða hverjir það eru. Það eru upplýsingar sem geta nýst þeim sem eiga hlut að máli," segir Ólafur í samtali við fréttastofu. Húsleitir fóru fram á nokkrum stöðum á föstudag en meðal annars var leitað á heimilum fyrrverand stjórnenda Kaupþings. Rannsóknin snýst um sölu á 5% hlut í Kaupþingi til eignarhaldsfélags í eigu sjeiksins Al Thani. Ólafur segir að á næstu dögum þurfi menn að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að haldleggja gögnin eða skila því sem tekið var til baka. Hann segir mikið mál að fá að leita á heimilum manna enda snúist það um stjórnarskrárvarinn rétt manna. „Þó allt hafi farið hér á hliðina fyrir ekki margt löngu þá viljum við samt halda áfram að búa í réttarríki." Aðspurður um þá gagnrýni að menn séu nokkuð seinir á ferð í þessu máli. Nokkuð sé liðið frá umræddum viðskiptum og auðvelt hafi verið fyrir þá sem hugsanlega eiga aðild að málinu að eyða gögnum. „Það vill gleymast að þegar bankarnir hrundu fór af stað ákveðin rannsókn hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta mál var búið að vera í ákveðinn tíma í rannsókn hjá þeim og kemur svo til okkar þann 13.mars. Við höfum ekkert verið að endurtaka það sem þeir gerðu heldur tökum upp ákveðinn þráð og það hófst ekki á föstudaginn og ekki þegar við tókum þessi gögn, heldur miklu fyrr. Ég held að ef þú leggur kenninguna um pappírstætarana við þetta þá sé niðrustaðan ekki alveg alslæm," segir Ólafur. Hann bendir einnig á orð Evu Joly um að slóð peninga sé ekki svo auðveldlega afmáð. Aðspurður um aðkomu hennar að þessu máli segir hann hana ekki fara ofan í einstök mál heldur veiti ráðgjöf almennt. „Þó þetta mál hangi efst á spýtunni í dag þá er heilmargt annað í gerjun sem við munum fara í." Hann segir Evu síðast hafa komið hingað til lands í apríl og þá hafi verið með í för norskur ráðgjafi frá efnahagsbrotadeildinni þar í landi. „Hún kemur bara með ákveðna sýn og reynslu og kemur með tillögur og ráðleggur, við tökum síðan afstöðu til þess. Þegar hún hefur verið hér höfum við unnið mikið með henni og haft gagn af."
Tengdar fréttir Rannsóknin snýr að 25 milljarða kaupum Al-Thani Rannsókn sérstaks saksóknarar sem greint er frá hér á síðunni og leitt hefur af sér tug af húsleitum snýst um 25 milljarða kr. kaup Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani frá Qatar á 5% hlut í Kaupþingi. Kaupin áttu sér stað skömmu fyrir fall Kaupþings s.l. haust og hafa töluverðir eftirmálar orðið síðan. 22. maí 2009 15:25 Tíu húsleitir á vegum sérstaks saksóknara Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf á 5,01% hlut í Kaupþing banka fóru fram húsleitir á tíu stöðum í dag og síðastliðinn þriðjudag, að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. 22. maí 2009 15:10 Ekki búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson Húsleit fór fram á heimilum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings og í bankanum á vegum sérstaks sakskóknara í tengslum við rannsókn á kaupum eignarhaldsfélags sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Ólafur Ólafsson, sem var um tíma annar stærsti eigandi Kaupþings og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður. 23. maí 2009 11:43 Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira
Rannsóknin snýr að 25 milljarða kaupum Al-Thani Rannsókn sérstaks saksóknarar sem greint er frá hér á síðunni og leitt hefur af sér tug af húsleitum snýst um 25 milljarða kr. kaup Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani frá Qatar á 5% hlut í Kaupþingi. Kaupin áttu sér stað skömmu fyrir fall Kaupþings s.l. haust og hafa töluverðir eftirmálar orðið síðan. 22. maí 2009 15:25
Tíu húsleitir á vegum sérstaks saksóknara Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf á 5,01% hlut í Kaupþing banka fóru fram húsleitir á tíu stöðum í dag og síðastliðinn þriðjudag, að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. 22. maí 2009 15:10
Ekki búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson Húsleit fór fram á heimilum fyrrverandi stjórnenda Kaupþings og í bankanum á vegum sérstaks sakskóknara í tengslum við rannsókn á kaupum eignarhaldsfélags sjeiksins Al Thani á 5% hlut í Kaupþingi. Ólafur Ólafsson, sem var um tíma annar stærsti eigandi Kaupþings og hafði milligöngu um viðskiptin, hefur ekki verið yfirheyrður. 23. maí 2009 11:43