Isom hættur hjá Þór Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2009 23:55 Cedric Isom í leik með Þór. Mynd/Anton
Nú er ljóst að Cedric Isom mun ekki spila aftur með Þór á tímabilinu eins og vonir stóðu til um. Isom meiddist skömmu fyrir jól og var þá ákveðið að segja ekki upp samningi hans, þrátt fyrir erfiðar efnahagslegar aðstæður. Bati Isom hefur verið mun hægari en Þórsarar áttu von á. „Þetta er í takt við annað, það fellur ekkert með okkur þennan veturinn. Við tókum Cedric til baka á þeim forsendum að hann myndi klárlega missa af fyrstu þremur leikjunum eftir jól og FSu leikurinn væri spurningarmerki, þó meiri líkur en minni á að hann gæti spilað þann leik. Bati hans er því miður mun hægari en áætlað var og þar sem hann verður ekki með á morgun og litlar líkur á að hann verði tilbúinn eftir viku þá er í raun ekkert annað í stöðunni en að leiðir skilji," sagði Kári Þorleifsson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, á heimasíðu félagsins. Hrafn Kristjánsson, þjálfari liðsins, að ákvörðunin um að halda Isom hafi að hluta til verið byggðar á röngum upplýsingum frá læknum hans í Bandaríkjunum. „Við tókum ákvörðun um að standa með stráknum og sjáum ekki eftir því enda er Cedric löngu búinn að sanna sig sem einn besta bakvörð landsins á þeim tíma sem hann spilaði með Þór. Við óskum Cedric alls hins besta og þökkum honum fyrir hans framlag til félagsins. Hann hefur reynst okkur alveg frábær félagi jafnt innan vallar sem utan," sagði Hrafn. Þór fékk Bandaríkjamanninn Daniel Bandy til að fylla í skarð Isom og er nú ljóst að hann mun spila með liðinu til loka tímabilsins.
Dominos-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Sjá meira