Ríkisbréfaeign útlendinga minnkaði töluvert í júní 10. júlí 2009 12:38
Eign útlendinga í ríkisverðbréfum minnkaði talsvert í júní en þeir eiga þó enn um það bil 180 milljarða kr. að nafnvirði í ríkisbréfum og víxlum. Vaxtagreiðslur ríkissjóðs til erlendra fjárfesta eru því enn verulegar. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu.Þar segir að í Markaðsupplýsingum Seðlabankans fyrir lánamál ríkisins, sem út komu í gær, kemur fram að erlendir fjárfestar keyptu fimmtung seldra bréfa í fyrsta útboði á ríkisbréfaflokknum RIKB 25 0612, alls ríflega 2 milljarða kr. að nafnverði. Telur greiningin ótvírætt jákvætt að útlendingar skuli hafa áhuga á íslenskum langtíma ríkisbréfum, þótt enn sem komið er sé ekki um háar fjárhæðir að ræða. Raunar er athyglisvert að stærsti kaupendahópur þessara bréfa voru innlendir lífeyrissjóðir sem keyptu 23% þeirra, en hlutdeild lífeyrissjóðanna í öðrum ríkisbréfaflokkum er að jafnaði um 7%. Langur líftími hins nýja flokks ætti hins vegar að henta fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða tiltölulega vel. Alls keyptu erlendir fjárfestar ríkisbréf í útboðum Seðlabankans fyrir 28,9 milljarða kr. í júní, sem svarar til tæplega tveggja þriðjuhluta sölu bankans í útboðum í síðasta mánuði. Þetta telja Seðlabankamenn í riti sínu til marks um aukinn áhuga útlendinga á kaupum á innlendum ríkisbréfum. Hins vegar ber að hafa í huga að í júní var gjalddagi á miklu magni ríkisbréfa, ríkisvíxla og innstæðubréfa sem að mestu leyti var í eigu útlendinga. Þannig var ríkisbréfaflokkurinn RIKB 09 0612 á lokagjalddaga í mánuðinum, en útlendingar áttu 71 milljarð kr. að nafnverði í þeim flokki. Einnig áttu þeir 11,5 milljarða kr. af þeim 20 milljörðum kr. ríkisvíxlaflokki sem féll á gjalddaga í síðasta mánuði, en keyptu aðeins 1,2 milljarð kr. af nýjum ríkisvíxlum í útboði Seðlabankans í júní. Síðast en ekki síst voru innstæðubréf Seðlabankans að upphæð 67 milljarðar kr. á gjalddaga í júní, en langstærstur hluti þeirra var í eigu útlendinga. Erlendir fjárfestar fengu því í hendurnar í kring um 140 milljarða kr. í júní, að vöxtum meðtöldum, vegna gjalddaga ríkisverðbréfa og innstæðubréfa, en kusu aðeins að endurfjárfesta ríflega 30 milljarða kr. í ríkisverðbréfum í útboðum Seðlabankans. Mismunurinn liggur trúlega að mestu leyti á krónureikningum Seðlabanka og erlendra sem innlendra fjármálastofnana, þótt einnig kunni útlendingar að hafa fjárfest í ríkisverðbréfum á eftirmarkaði í einhverjum mæli. Snörp hækkun á bundnum innlánum fjármálastofnana í Seðlabankanum, og síðan hinum nýju innstæðubréfum þeirra hjá bankanum, rennir stoðum undir þessa skoðun greiningarinnar. Á meðan gjaldeyrishöftin eru við lýði er líklegt að eign útlendinga í ríkistryggðum pappírum verði áfram veruleg, þar sem þeim er óheimilt að flytja höfuðstól krónueignar sinnar úr landi, og fátt um aðra kosti til ávöxtunar á krónueigninni að innlánsreikningum frátöldum. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að meðan þessi er raunin renna háar vaxtagreiðslur úr ríkissjóði til útlendingana, sem margir hverjir vilja þó frekar hverfa úr krónunni en þiggja þessa vexti.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira