Endurfjármögnun bankanna ódýrari en áætlað var 20. júlí 2009 18:23
Kostnaður ríkissjóðs vegna endurfjármögnunar nýju viðskiptabankanna þriggja mun nema um 330 milljörðum króna á þessu ári sem er um 60 milljörðum króna lægri upphæð en áður var áætlað samkvæmt samkomulagi ríkisins og skilanefnda gömlu bankanna. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag. Innifalið í upphæðinni eru tvö 25 milljarða króna víkjandi lán ætluð Nýja Kaupþingi og Íslandsbanka til þess að hækka lausafjárhlutfall þeirra. Skilmálar lánanna voru ekki gefnir upp í tilkynningu fjármálaráðuneytisins en ætla má að þau muni skila sér aftur til ríkisins á líftíma sínum. Markmiðið er að í kjölfar aðgerðanna verði eiginfjárhlutfall bankanna þriggja (Tier 1) um 12%.Efnahagsreikningar verða tilbúnir 14. ágúst Í kjölfar samninganna hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að endurfjármögnun bankanna verði lokið 14. ágúst næstkomandi með útgáfu skuldabréfa og annarra fjármálagerninga milli gömlu og nýju bankanna. Í framhaldi af því verður bönkunum kleift að hefja starfsemi með fullbúna efnahagsreikninga frá bankahruninu í október auk þess sem hægt verður að birta endurskoðaða ársreikninga þeirra fyrir árið 2008. Þetta mun eiga sér stað óháð því hvort kröfuhafar ákveða að ganga að samkomulaginu. Náist ekki samkomulag við kröfuhafa í tilfelli Nýja Kaupþings og Íslandsbanka mun ríkið halda hlut sínum í nýju bönkunum samkvæmt tilkynningu fjármálaráðuneytisins. Ætlunin er að í þeim tilfellum muni fjárfesting ríkisins skila sér til baka með því að nýju bankarnir gefi út skuldabréf sem tryggja viðunandi ávöxtun af fjárfestingunni. Þá munu ríkið veita skilanefndum viðkomandi banka kauprétt á 90% hlutafjáreignar ríkisins í nýju bönkunum sem verður hægt að nýta á árunum 2011-2015. Vonast er til að samráði við kröfuhafa verði að mestu lokið fyrir septemberlok og fljótlega í kjölfarið muni liggja fyrir endanlegur eignarhlutur ríkisins í hverjum banka.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira