Tryggingamiðstöðin greiddi 144% arð af hagnaði 2006 20. júlí 2009 16:09
Tryggingamiðstöðin greiddi hlutfallslega hæstan arð af hagnaði sínum árið 2006 eða 144%. Hagnaðurinn nam 696 milljónum kr. en arðgreiðslan 999 milljónum kr. Arðgreiðsla Sjóvár á þessu ár nam 61% af hagnaði eða 7,3 milljörðum kr. af hagnaði upp á tæplega 12 milljarða kr. VÍS greiddi svo hlutfallslega minnst eða 29%. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum síðastliðna helgi um arðgreiðslur vátryggingafélaga og hlutfall þeirra af hagnaði, telur Fjármálaeftirlitið rétt að birta upplýsingar um hagnað og arðgreiðslur þriggja stærstu vátryggingafélaganna vegna áranna 2006-2008. Þegar arðgreiðslur eru bornar saman við hagnað er rétt að hafa í huga að ákvörðun um arðgreiðslur er tekin á aðalfundum vátryggingafélaga og er þá miðað við afkomu ársins á undan. Þannig voru til dæmis arðgreiðslur vegna ársins 2006 ákveðnar á aðalfundum félaganna í ársbyrjun 2007 þegar árið 2006 var gert upp. Rétt er einnig að hafa í huga að samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi er heimilt að greiða yfirfærðan hagnað frá fyrri árum, enda sé ljóst að félagið uppfylli kröfur um tilskilið lágmarksgjaldþol, þess hafi verið gætt að leggja til hliðar nægilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og að settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu þeirra hafi verið fylgt. Öll félögin þrjú greiddu arð vegna ársins 2006 og að meðaltali námu arðgreiðslurnar 55% af hagnaði. Einungis eitt af félögunum greiddi arð vegna ársins 2007 og enginn arður var greiddur vegna ársins 2008. Þetta eina sem greiddi arð 2007 var Tryggingamiðstöðin og nam greiðslan 48% eða 2.1 milljarði kr. af hagnaði upp á tæpa 4,4 milljarða kr.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira