Fjárþörf sveitarfélaga eykur framboð skuldabréfa 27. apríl 2009 12:30
Verulegur hluti nýs framboðs á verðtryggðum skuldabréfum á þessu ári mun væntanlega stafa af lánsfjárþörf sveitarfélaga. Mun þetta vega gegn minna framboði íbúðabréfa en vænst var. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að til marks um þetta er útboð Lánasjóðs sveitarfélaga (LS) í skuldabréfaflokknum LSS 15 0224 síðastliðinn föstudag. Þessi skuldabréfaflokkur, sem er eins að uppbyggingu og næststysti flokkur íbúðabréfa (HFF24), er helsta fjármögnunarleið LS um þessar mundir og hefur hann stækkað nokkuð hratt undanfarið. Í útboðinu á föstudag var tekið tilboðum að nafnvirði 1.840 milljónir kr. á ávöxtunarkröfunni 6,5%, en tilboð höfðu alls borist fyrir 2.040 milljónir kr. að nafnvirði. Stærð flokksins er nú ríflega 13 milljarðar kr., en til samanburðar er HFF24 u.þ.b. 123 milljarðar kr. að stærð. Lánasjóður sveitarfélaga annast stóran hluta af langtímafjármögnun íslenskra sveitarfélaga, en það eru helst allra stærstu sveitarfélögin sem ráðist hafa í skuldabréfaútgáfu upp á eigin spýtur. Sjóðurinn ráðgerir að gefa út skuldabréf fyrir 12-24 milljarða kr. í ár, en til samanburðar er áætluð fjármögnunarþörf sveitarfélaga í kring um 24 milljarða kr. á yfirstandandi ári, og þykir okkur líklegt að sú tala kunni að reynast hærri á endanum. Framboð verðtryggðra bréfa opinberra aðila verður því væntanlega talsvert á árinu, en Íbúðalánasjóður áætlar að gefa út íbúðabréf fyrir 33 - 38 milljarða kr.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira