Íslandsbanki segir engar reglur hafa verið brotnar 30. apríl 2009 21:21 Víglundur Þorsteinsson sakar ríkisbankana um að hygla fyrirtækjum í þeirra eigu. Íslandsbanki neitar að reglur séu brotnar. Mynd/ GVA.
Íslandsbanki fylgir í öllu tilmælum frá Samkeppnisstofnun um að stuðla að opnu og gagnsæju ferli við meðhöndlun viðskiptavina og til að stuðla að samkeppni á íslenskum markaði eins og kostur er," segir í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér vegna fréttar Stöðvar 2 og Vísis í kvöld um að bankinn hygli fyrirtækjum í þeirra eigu. Í yfirlýsingunni segir að strangar reglur gildi um beina þátttöku fjármálafyrirtækja í ótengdum rekstri. Slíkt sé háð skilyrðum Fjármálaeftirlits og hafi bankinn skilað eftirlitinu sérstakri áætlun um rekstraráform og tímaáætlun í því sambandi. Í tilkynningunni segir að umkvörtunum stjórnarformanns BM Vallár hafi verið tekið af mikilli festu og alvöru í bankanum og regluverði hafi verið falið að kanna hvort starfsreglur bankans í þessum efni hafi verið brotnar. Svo hafi ekki verið. „Steypustöðin hf. er komin í söluferli hjá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sem áformar að auglýsa fyrirtækið til sölu á næstu vikum. Forstöðumaður Lánaeftirlits bankans féllst á taka að sér stjórnarformennsku í fyrirtækinu á meðan unnið yrði að sölu þess þar sem fyrrum stjórnarformaður, Jón Steingrímsson, baðst lausnar í vor er hann hóf störf hjá Landsbankanum. Það skal ítrekað að Íslandsbanki eða starfsmenn hans hafa aldrei haft afskipti af því hvar viðskiptavinir bankans versla sitt hráefni. Ákvarðanir um lánveitingar til viðskiptavina bankans eru samkvæmt lánareglum hans og byggja á fjárhagsstöðu viðskiptavina, greiðsluhæfi og tryggingum. Lánareglur eru birtar á vef bankans. Gerðar eru sömu kröfur til félaga í eigu bankans og annarra um fjárhagslegt hæfi," segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira