Mentor hlaut Vaxtarsprotann annnað árið í röð 30. apríl 2009 11:57
Fyrirtækið Mentor ehf. hlaut í morgun „Vaxtarsprotann 2009" sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Þetta er annað árið í röð sem fyrirtækið vex hraðast íslenskra sprotafyrirtækja. Mentor jók veltu sína milli áranna 2007 og 2008 um næstum 160%. Fyrirtækin Naust Marine, Gogogic og Saga Medica fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan vöxt á síðasta ári. Í tilkynningu segir að Vaxtarsprotinn sé viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn með veitingu hans er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Það var Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sem veitti Vilborgu Einarsdóttur stjórnarformanni og stofnanda Mentor ásamt stjórn og öðrum starfmönnum fyrirtækisins Vaxtarsprotann 2009 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðilum atvinnulífsins í Grasagarðinum Laugardal við hátíðlega athöfn í morgun. Alls hlutu fjögur sprotafyrirtæki viðurkenningu fyrir öflugan vöxt milli áranna 2007 og 2008, en viðurkenningunum var skipt í tvo flokka. Í „2. deild", þ.e. flokki sprotafyrirtækja með veltu á bilinu 10-100 milljónir hlutu fyrirtækin Gogogic ehf. og Saga Medica ehf. viðurkenningu en í „1. deild", flokki sprotafyrirtækja með ársveltu á bilinu 100-1000 milljónir fengu fyrirtækin Mentor ehf og Naust Marine hf. viðurkenningu. Við sama tilefni var fyrirtækið Nimblegen Systems - útibú á Íslandi brautskráð sem sprotafyrirtæki og tekið inn í úrvalsdeild íslenskra hátækifyrirtækja. Sigríður Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækisins tók við sérstakri viðurkenningu úr hendi Jóns Steindórs Valdimarssonar, framkvæmdastjóra SI í þessum sambandi. Þetta er gert innan Samtaka iðnaðarins þegar sprotafyrirtæki hafa náð þeim áfanga að velta meiru en milljarði króna á ári. Síðasta fyrirtækið sem náði þessum áfanga var CCP árið 2006.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira