Verstu jólagjafir opinberra stofnanna í Svíþjóð 9. desember 2009 11:05
Sænska vefsíðan chef.se hefur birt lista yfir verstu jólagafir opinberra stofnanna og fyrirtækja í Svíþjóð til starfsmanna sinna. Meðal þess sem þar er að finna er jólagjöf sænska tollsins til starfsmanna sinna í fyrra. Það var Ipod tæki en svo óheppilega vildi til að um ólöglegar smyglaðar eftirlíkingar var að ræða. Tollyfirvöld afsökuðu sig með að önnur stofnun hefði séð um kaupin fyrir þá.Það var hinsvegar ekkert ólöglegt við jólagöfina sem bæjarfélagið Mora gaf starfsmönnum sínum. Um var að ræða gjafakort upp á 200 sænskar kr. Því miður hafði sá sem bar ábyrgðina á þessari gjöf ekki kynnt sér skattareglurnar nægilega vel því starfsmennirnir voru rukkaðir um 60 króna skatt hver af gjöf sinni.Bæjarstarfsmenn í Karlskrona gátu þó ekki kvartað undan sinni jólagjöf árið 2005. Þeir fengu nefnilega enga slíka það árið. Hinsvegar fengu allir forstöðumenn stofnanna Karlskrona sem og bæjarfulltrúarnir bæði jólahlaðborð og jólagjafir á kostnað bæjarsjóðs.Sænski skatturinn fór að fordæmi Mora árið 2007 og gaf 12.000 starfsmönnum sínum gjafakort. Þetta voru starfsmennirnir ánægðir með. Vandamálið var bara að gjafakortið gilti eingöngu hjá fyrirtæki sem hafði verið kært fyrir skattsvik.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira