Fjármálafurstar flykkjast úr landi í öruggt skjól 19. nóvember 2009 18:43
Bankastjórar og aðrir kaupsýslumenn sem voru í fararbroddi útrásarinnar hafa nú flutt lögheimili erlendis þar sem þeir dveljast í öruggu skjóli frá riftunarkröfum skilanefnda föllnu bankanna. Skilanefndirnar vilja að ráðherra beiti sér fyrir lagabreytingum. Margir auðmenn hafa flutt úr landi eftir bankahrunið. Nefna má Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi Kaupþingsforstjóra og Skúla Þorvaldsson, en báðir eru skráðir í Lúxemborg. Þá eru Margir í Bretlandi, eins og Ágúst og Lýður Guðmundssynir, Hannes Smárason, Ólafur Ólafsson, Ármann Þorvaldsson og nýlega Magnús Ármann, kaupsýslumaður kenndur við Ímon og viðskiptafélagi hans, Sigurður Ásgeir Bollason. Ekki hafa þeir þó allir út vegna hrunsins og einhverjir þeirra fluttu út vegna atvinnu sinnar eða hafa búið þar lengi, eins og t.d Ármann Þorvaldsson og Bakkabræður, þeir Ágúst og Lýður. Fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag að slitastjórnir og skilanefndir föllnu bankanna þriggja hafi skrifað efnahags- og viðskiptaráðherra bréf til að vekja athygli á því að þær geti ekki rift samningum þeirra sem mögulega fengu óeðlilega fyrirgreiðslu hjá bönkunum ef viðkomandi er með lögheimili erlendis. Er þetta vegna varnarþingsreglna. Löggjafinn hefur látið hjá líða að innleiða Evróputilskipun um varnarþingsreglur við gjaldþrot fjármálafyrirtækja. Af þessum sökum hafa engin riftunarmál verið höfðuð gegn þeim sem eru búsettir erlendis og hefur þetta haft neikvæð áhrif á endurheimtur í þrotabúi gömlu bankanna. En hvað ætla stjórnvöld að gera í málinu? „Við erum sem sagt að athuga lögfræðilegar afleiðingar þess ef menn flytja lögheimili og ég vil ekkert segja fyrirfram um það hver niðurstaðan úr þeirri vinnu verði. Þetta er bersýnilega eitt af því sem þarf að athuga," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira