Atvinnulausum fer fjölgandi á nýjan leik 2. september 2009 11:54
Atvinnulausum fjölgaði í ágúst og er það í fyrsta sinn sem þeim fjölgar frá því í mars síðastliðnum samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Atvinnulausir skráðir á vinnumiðlunum í ágústbyrjun voru 15.217 en núna ríflega mánuði síðar eru þeir 15.480 og hefur því fjölgað um 263 á tímabilinu. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að með þessu hafi snúist við þróunin sem hefur verið allt frá því í mars, en þá náði fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar hámarki í 16.822. Tvennt hefur verið að vegast á undanfarna mánuði í þróun atvinnuleysisins. Annars vegar er það undirliggjandi efnahagsþróun en þar hefur samdrátturinn verið vaxandi og atvinnuleysið af þeim sökum færst í aukana. Hins vegar hefur það verið árstíðarsveiflan sem almennt er í atvinnuleysinu hér á landi og er þannig að atvinnuleysið lækkar að vori og yfir sumarmánuðina en hækkar síðan að hausti og fram eftir vetrinum. Ástæðan er meðal annars ársíðarbundin verkefnastaða fyrirtækja. Undanfarið hefur árstíðarsveiflan haft betur og atvinnulausum fækkað þrátt fyrir að dýpt samdráttarins í efnahagslífinu sé að aukast. Á næstunni leggst hvorttveggja á eitt með að auka atvinnuleysið þ.e. árstíðarsveiflan og undirliggjandi efnahagsþróun. Hagkerfið mun líklegast ekki ná botninum í þessari niðursveiflu fyrr en á næsta ári og samdrátturinn mun dýpka þangað til. Árstíðarsveiflan mun síðan auka enn fjölda atvinnulausra á næstunni. Greiningin reiknar með því að skráðum atvinnulausum muni fjölga nokkuð hratt næstu mánuði og að atvinnuleysið þannig mælt muni ná hámarki í mars eða apríl á næsta ári. Ekki er loku fyrir það skotið að atvinnulausir verði þá um 18-20 þúsund eða um 10-12% af vinnuaflinu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira