Nýherji skilar hagnaði á þriðja ársfjórðungi 23. október 2009 18:09 Nýherji
EBIDTA hagnaður Nýherja hf. nam 107 mkr á þriðja ársfjórðungi en þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins fyrir þann ársfjórðung. Forstjóri félagsins segir viðsnúning hafa orðið á rekstri félagsins en afkoma af hugbúnaðarverkefnum erlendis var góð á þessu tímabili. Þá segir í tilkynningu frá Nýherja að rekstur Applicon félaga í Danmörku og Svíþjóð sé stöðugur en áform eru um útgáfu á nýju hlutafé. „Viðsnúningur varð á rekstri Nýherja hf. í þriðja ársfjórðungi frá því sem verið hefur síðustu þrjá ársfjórðunga. EBITDA hagnaður nam 107 mkr og nálgast að vera áþekkur því sem var í öðrum og þriðja ársfjórðungi 2008. Sala á búnaði og lausnum á Íslandi jókst eftir því sem leið á tímabilið, sem gefur varfærnar vísbendingar um betri horfur í sölu á rekstrar- og tækniþjónustu," segir Þórður Sverrisson, forstjóri í tilkynningunni. Hann segir ennfremur að Nýherji hafi lagt þunga áherslu á að lækka rekstrarkostnað á árinu sem hafi skilað sér í bættri afkomu eftir því sem liðið hefur á árið. Hann telur að áframhaldandi aðhald muni styrkja rekstrarafkomu í fjórða ársfjórðungi. „Markaðsstaða fyrir hugbúnaðarþjónustu og ráðgjöf á Íslandi hefur kallað á að kannað sé með tækifæri erlendis. Applicon ehf. og TM Software ehf., dótturfélög Nýherja í hugbúnaðarþjónustu, hafa brugðist við miklum samdrætti innanlands með því að leita markvisst eftir verkefnum erlendis og er nú svo komið að yfir þriðjungur tekna þessara félaga kemur af verkefnum fyrir erlenda aðila. Nýherjasamstæðan hefur markað þá stefnu að fjölga enn frekar verkefnum erlendis fyrir ráðgjafa og tæknimenn samstæðunnar, meðal annars með því að nýta góða markaðsstöðu dótturfélaga í Danmörku og Svíþjóð. Sem lið í að styrkja fjárhagsstöðu Nýherja hf. hefur stjórn félagsins ákveðið að hefja undirbúning að útgáfu og sölu á nýju hlutafé," segir Þórður.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira