Viðskipti innlent

Verðmæti framleiðsluvara jókst um 160 milljarða milli ára

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2008 var 545 milljarðar króna sem er aukning um rúma 160 milljarða króna frá árinu 2007 og 10,6% aukning að raungildi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum hagtíðindum Hagstofu Íslands um Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2008.

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2008 án fiskafurða og framleiðslu málma voru tæpir 187 milljarðar króna samanborið við 174 milljarða króna árið 2007, sem er aukning um rúma 13 milljarða milli ára.

Hlutdeild einstakra atvinnugreina í söluverð-mæti framleiðsluvara er nokkuð stöðug milli áranna 2007-2008 fyrir utan mikla aukningu í framleiðslu málma þar sem verðmæti seldrar framleiðslu jókst um rúma 106 milljarða króna milli ára.

Af einstökum atvinnugreinum er hlutdeild matvæla- og drykkjarvöruframleiðslu stærst með 43,0%, þar af vegur framleiðsla fiskafurða þyngst eða 29,7% af heildarverðmæti seldra framleiðsluvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×