Össur á markaði í áratug 15. október 2009 06:00 Tíu ára skráningu Össurar á markað var fagnað í Kauphöllinni á mánudag. „
Þetta hefur verið viðburðaríkur tími,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, en á sunnudag voru liðin tíu ár frá því að fyrirtækið var skráð á markað, þá Verðbréfaþing. Stoðtækjafyrirtækið var stofnað árið 1971 og tók Jón við forstjórastólnum árið 1996. Hann segir margt hafa breyst síðan þá. Starfsmenn þá hafi verið á milli fimmtíu til hundrað en 1.600 í dag og fyrirtækið með starfsemi víða um heim. Þegar fyrsta viðskiptadegi lauk með bréf Össurar á markaði fyrir áratug nam markaðsverðmæti þess rúmum sjö milljörðum króna. Össur Kristinsson, stofnandi fyrirtækisins, og fjölskylda hans áttu þá um helming hlutabréfanna. Hann er nú skráður fyrir rúmum átta prósenta hlut. Stærstu hluthafarnir í dag eru danska fyrirtækið William Demant Invest og Eyrir Invest með sextíu prósenta hlut. Össur er á meðal elstu fyrirtækja sem skráð eru á markað hér. Markaðsverðmæti þess nam í gær tæpum 52,5 milljörðum króna og er það verðmætasta íslenska félagið sem skráð er í Kauphöllina. „Við vorum mjög lítið fyrirtæki árið 1999 og því mjög erfitt að skrá það erlendis. Nú erum við miklu stærri,“ segir Jón Sigurðsson. Skref var stigið í sögu Össurar í byrjun september en þá voru hlutabréf félagsins skráð á markað í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn í Danmörku. - jab
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Sjá meira