Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði 22. apríl 2009 16:29
Verkfræðistofan Mannvit hefur sótt um lóð fyrir 244.000 rúmmetra olíubirgðastöð á Reyðarfirði, fyrir hönd Atlantic Tank Storage og var fjallað um umsóknina í umhverfisnefnd Fjarðarbyggðar í dag. Í tilkynningu segir að birgðastöðin er hönnuð fyrir geymslu á almennum olíuvörum þ.m.t. bensíni, gasolíu og jarðolíu og er gert ráð fyrir að í stöðinni verði um 13 geymar. Áætlaður byggingartími er 15-18 mánuðir og er gert ráð fyrir 120 til 150 ársverkum við byggingu stöðvarinnar. Þegar byggingunni er lokið munu þrír til fimm starfsmenn annast reksturinn. Stöðin verður rekin sem tollvörugeymsla og birgðastöð fyrir olíuvörur sem eru á leið á markaði í Ameríku og Evrópu og hún getur einnig nýst í tengslum við fyrirhugaða olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Gert er ráð fyrir að stöðin geti bæði tekið á móti jarðolíum og unnum olíuvörum eins og bensíni. Reyðarfjörður hefur marga kosti fyrir þjónustu sem þessa. Þar er höfn fyrir stór olíuskip með 14,3 m djúpristu. Ennfremur hefur Reyðarfjörður öfluga dráttarbátaþjónustu, gott slökkvilið og almenna tækniþjónustu. Síðast en ekki síst er Reyðarfjörður vel staðsettur með tilliti til olíumarkaða í Bandaríkjunum og Evrópu enda liggur Reyðarfjörður vel við skipaleiðum til stórra olíuhafna í Rotterdam, Mongstad og Murmansk. Hugmyndin að þessu verkefninu kviknaði fyrir tveimur árum og hefur Mannvit unnið markvisst að undirbúningi þess frá því í september 2008. Mannvit kynnti verkefnið fyrir Atlantik Tank Storage í janúar síðast liðnum og hafa fyrirtækin skrifað undir samstarfsamning um verkefnið. Verkfræðistofan Mannvit er stærsta ráðgjafafyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni með starfsstöðvar á níu stöðum utan höfuðborgarinnar. Þá er fyrirtækið með fjölmörg verkefni erlendis meðal annars í gegnum dótturfyrirtæki í Ungverjalandi. Atlantic Tank Storage er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað árið 2006. Fyrirtækið leigir og rekur þrjár olíubirgðastöðvar á Íslandi , tvær í Hvalfirði, eina í Helguvík auk einnar birgðastöðvar í Noregi. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu stærsta olíugeymslufyrirtækis Svíþjóðar, Scandinavian Tank Storage, en það á og rekur birgðastöðvar á Norðurlöndunum og þjónar þar mörgum af stærstu olíufyrirtækjum Evrópu. Hjá fyrirtækjunum tveimur starfa um 30 manns.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira