Sparnaður ehf. höfðar mál gegn ríkisbönkunum 22. apríl 2009 15:34
Sparnaður ehf hefur höfðað mál á hendur ríkisbönkunum þremur, NBI, Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi banka, til viðurkenningar á skaðabótaskyldu bankanna vegna ólögmætra hindrana á Uppgreiðsluþjónustu lána. Í tilkynningu segir að ríkisbankarnir þrír hafi kerfisbundið reynt að koma í veg fyrir að Sparnaður ehf. geti aðstoðað viðskiptavini sína við uppgreiðslu á lánum, svokölluðum höfuðstólsgreiðslum. Kaupþing hefur frá byrjun Uppgreiðsluþjónustu Sparnaðar í desember 2007 hafnað öllu samstarfi. Íslandsbanki, þá Glitnir, kom svo í kjölfarið og eftir að Landsbankinn varð ríkisbanki tók hann upp sömu starfshætti. Bankarnir hafa ýmist borið fyrir sig að umboð Sparnaðar til þess að veita Uppgreiðsluþjónustuna sé ófullnægjandi eða það sé svo erfitt að framkvæma höfuðstólsgreiðslurnar. Sparnaður hefur ítrekað óskað eftir efnislegum athugasemdum við umboðin en ekki fengið svör nema þá helst að bankarnir séu ekki lögfræðilegir ráðgjafar Sparnaðar. Það sem varðar innanhúsvanda bankanna er því miður ekki á valdi Sparnaðar að leysa. Með Uppgreiðsluþjónustu Sparnaðar getur ein fjölskylda sparað sér allt að tugi milljóna í vexti og verðbætur. Þetta eru hins vegar vaxtatekjur sem bankinn verður af. Það er því augljóst að miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi. En það er með öllu ólíðandi að fjármálastofnanir, sem auk þess eru komnar í ríkiseigu, beiti bolabrögðum og valdníðslu til þess að koma í veg fyrir að fólkið í landinu geti greitt hraðar upp lán sín með aðstoð Sparnaðar. Sparisjóðirnir hafa ekki gert athugasemdir við Uppgreiðsluþjónustu Sparnaðar og því hafa viðskiptavinir þeirra getað hindrunarlaust greitt upp lán sín. Það er hins vegar áhyggjuefni fyrir viðskiptavini SPRON að Kaupþing skuli eiga að þjónusta þá, meðal annars við uppgreiðslu lána í ljósi andstöðu bankans við Uppgreiðsluþjónustu Sparnaðar.Ráðherra bankamála, Gylfa Magnússyni, var gerð grein fyrir málshöfðuninni á hendur bönkunum á fundi í viðskiptaráðuneytinu þann 13. mars sl.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira