Ríkisstjórnir verði djarfari í aðgerðum Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. apríl 2009 00:01 Gordon Brown og Dominique Strauss-Kahn Forsætisráðherra Breta og framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ræðast hér við um leið og þeir ganga inn í ráðstefnusal Excel miðstöðvarinnar í Lundúnum þar sem G20 fundurinn fór fram í byrjun mánaðarins. Markaðurinn/AP
Tap fjármálafyrirtækja vegna alþjóðlegu lausafjárkreppunnar gæti numið 4,1 þúsundi milljarða Bandaríkjadala, eða 516 þúsund milljörðum króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um fjármálastöðugleika. Horft er til afskrifta og útlánataps á árunum 2007 til 2010. Í skýrslu AGS kemur fram að fjármálakerfi heimsins verði áfram undir miklu álagi um leið og fjármálakreppan dýpki og nái til heimila, fyrirtækja og fjármálakerfa bæði í þróuðum löndum og nýmarkaðsríkjum. „Samdráttur í heimshagkerfinu reynir á efnahagsreikninga banka um leið og eignir halda áfram að rýrna í verði. Þetta ógnar eiginfjárstöðu bankanna og hefur enn frekari fælingarmátt á ný útlán,“ segir í skýrslunni. Bent er á merki um að umfangsmiklar aðgerðir til stuðnings einkafyrirtækjum og opinberir aðgerðapakkar séu að skila sér í auknu jafnvægi. „Til þess að viðhalda jákvæðri þróun þarf samt að koma til markviss og skilvirk stefnumörkun ríkisstjórna og samhæfing alþjóðlegra aðgerða.“ Með þeim hætti megi byggja á ný upp traust á fjármálafyrirtækjum heimsins og koma á jafnvægi á mörkuðum. „Helsta áskorunin er að rjúfa vítahring minnkandi umsvifa fjármálakerfisins og efnahagssamdráttarins.“ Til þess að koma fjármálakerfinu á ról á ný eru ríki ekki sögð mega hika við að grípa inn í rekstur fjármálafyrirtækja með fjárframlagi, jafnvel þótt það þýði yfirtöku ríkisins að hluta eða öllu leyti. Tímabundin aðkoma ríkisins megi þó ekki vera með öðrum formerkjum en að koma til aðstoðar og koma eigi fjármálafyrirtækjunum aftur í einkaeigu jafnskjótt og auðið verði. Meðal þátta sem fjallað er um í skýrslunni er samspil skuldatryggingarálags (e. CDS spread) fjármálafyrirtækja og þjóðríkja. Eðli skuldatryggingarálagsins hafi breyst í fyrrahaust þegar ríki tóku í auknum mæli að ábyrgjast stærstu fjármálafyrirtæki landa sinna. „Á Írlandi lækkaði skuldatryggingarálag banka og nálgaðist álag ríkisins eftir að tilkynnt var um að ríkið gengist í ábyrgðir fyrir bankana. Svipað ferli átti sér stað í Bretlandi.“ Um leið er bent á að ferlið gæti átt sér stað með öfugum formerkjum sem myndi leiða til vítahrings þar sem hærra skuldatryggingarálag á fjármálafyrirtæki kallaði á hækkun á álag ríkisins og öfugt. „Í sumum aðstæðum (svo sem á Íslandi) getur þessi vítahringur stigmagnast að því marki að getuleysi ríkisins til að bjóða fullnægjandi tryggingar fyrir bankarekstur landsins leiðir til samhliða áfalla bæði fjármálakerfisins og gjaldmiðilsins.“
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira