Skuldatryggingaálag Íslands hátt en fer lækkandi 22. apríl 2009 11:32
Skuldatryggingaálag til fimm ára fyrir íslenska ríkið, sem við hrun bankanna í fyrra fór úr 4% í nærri 15% stóð í nærri 11% í mars síðastliðnum. Nú er það komið í 8,5%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að lækkunin sé sem sagt umtalsverð en hún hefur verið ívið meiri hjá öðrum ríkum sem standa illa á þennan mælikvarða. Þannig er skuldatryggingaálag íslenska ríkisins enn afar hátt og er nú ekki einungis það hæsta sem finnst meðal iðnvæddra ríkja heldur einnig meðal nýmarkaðsríkja. Undanfarið hefur íslenska hagkerfið frekar verið sett í flokk með þeim síðarnefndu hvað skuldatryggingaálagið varðar. Þannig er skuldatryggingaálagið meðal iðnríkjanna hæst hjá Írlandi, en þar stendur fimm ára skuldatryggingaálagið nú í tæplega 2,5% eftir að hafa farið í 4% í apríl síðastliðnum. Meðal nýmarkaðsríkja er það hæst í Lettlandi 7,5% og hefur lækkað úr því að vera í tæplega 12% í apríl síðastliðnum. Einna mest hefur skuldatryggingaálagið lækkað hjá Kasakstan en það hefur á þessum tíma farið úr nærri 16% í 7,3%. Greiningin segir að minni áhættufælni á alþjóðlegum fjármálamarkaði er ein af forsendum fyrir afnámi gjaldeyrishafta. Minni áhættufælni heldur fjárfestum frekar inni í hávaxtamyntum líkt og krónunni og er krónan þar með líklegri til að halda sjó við fleytingu í slíku umhverfi en ef áhættufælnin væri meiri. Minni áhættufælni á alþjóðavísu gerir það einnig að verkum að lægri mun innlendra og erlendra vaxta þarf til að halda sama styrk krónunnar. Minni áhættufælni er því ein af forsendum fyrir frekari lækkun stýrivaxta Seðlabankans. Minni áhættufælni alþjóðlega er auk þess forsenda fyrir þeim efnahagsbata á alþjóðavísu sem íslenskur hagvöxtur hvílir á. Þróunin á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur því verið afar jákvæð hvað þetta varðar fyrir íslenskt hagkerfi.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira