Afskrifaði lán til einstaklinga og fyrirtækja um rúm 8% 7. desember 2009 18:37
Íslandsbanki afskrifaði lán til einstaklinga og fyrirtækja um rúm 8% á síðasta ársfjórðungi árið 2008. Alls nam virðisrýrnun útlána um fjörutíu og sjö milljörðum króna. Íslandsbanki sendi í dag frá sér tilkynningu um afkomu bankans frá 15. október til 31. desember á síðasta ári. Hagnaður bankans eftir skatta nam rúmum 2,3 milljörðum króna. Í afkomutilkynningunni kemur fram að rekstrartekjur bankans, sem hafi að stærstum hluta verið tilkomnar vegna gengishagnaðar, hafi síðan verið að mestu leyti gjaldfærðar sem virðisrýrnun vegna skertrar greiðslugetu lántaka með tekjur í íslenskum krónum en lán í erlendum myntum. Þá hafi reynst nauðsynlegt að afskrifa lán um 47 milljarða vegna þessa. Afskriftirnar skiptast þannig: bankinn afskrifaði um 1,8 milljarða króna lán til banka, um 15,8 milljarða til einstaklinga, 28,8 milljarða til fyrirtækja og tæpan milljarð til ríkis og sveitarfélaga. Þetta þýðir að bankinn afskrifaði lán til einstaklinga og fyrirtækja um rúm 8% á þessu tímabili.
Tengdar fréttir Íslandsbanki birtir uppgjör fyrstu mánaða eftir hrun Íslandsbanki birti í dag uppgjör tímabilsins 15. október 2008 til 31. desember 2008, þegar bankinn hét raunar enn Glitnir. Í uppgjörinu kemur fram að hagnaður eftir skatta nam 2,356 milljörðum á tímabilinu og tekjuskattur er áætlaður 364 milljónir. Hreinar vaxtatekjur námu 13,8 milljörðum og hreinar þóknanatekjur 1,6 milljörðum. Stór hluti vaxtatekna á tímabilinu er tilkominn vegna verðtryggðra eigna umfram verðtryggðar skuldir en verðbólga á tímabilinu var 4,83%. 7. desember 2009 17:51 Mest lesið Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Sjá meira
Íslandsbanki birtir uppgjör fyrstu mánaða eftir hrun Íslandsbanki birti í dag uppgjör tímabilsins 15. október 2008 til 31. desember 2008, þegar bankinn hét raunar enn Glitnir. Í uppgjörinu kemur fram að hagnaður eftir skatta nam 2,356 milljörðum á tímabilinu og tekjuskattur er áætlaður 364 milljónir. Hreinar vaxtatekjur námu 13,8 milljörðum og hreinar þóknanatekjur 1,6 milljörðum. Stór hluti vaxtatekna á tímabilinu er tilkominn vegna verðtryggðra eigna umfram verðtryggðar skuldir en verðbólga á tímabilinu var 4,83%. 7. desember 2009 17:51