Mats Josefsson setti engin skilyrði 23. júní 2009 09:52
Mats Josefsson efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar setti engin skilyrði fyrir áframhaldandi vinnu sinni fyrir íslensk stjórnvöld. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur þingmanns Framsóknarflokksins um málið. Fyrirspurn Eyglóar hljóðaði svo: „Hvaða skilyrði setti Mats Josefsson fyrir áframhaldandi starfi í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins þegar hann hótaði að hætta sem formaður nefndarinnar vegna megnrar óánægju með hægagang við endurskipulagningu bankanna?"Svar forsætisráðherra er á þessa leið: „Frá lokum ársins 2008 hefur verið starfandi svonefnd samræmingarnefnd í bankamálum sem Mats Josefsson hefur stýrt og hefur sú nefnd haldið vikulega fundi. Í þessari nefnd hafa setið auk Mats fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, utanríkisráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Í síðasta mánuði var ákveðið í fullu samráði við Mats Josefsson að breyta fyrirkomulagi þessara mála á þann hátt að í stað samræmingarnefndarinnar yrði sett á laggirnar tímabundinn stýrihópur um endurreisn bankakerfisins. Megintilgangur þessarar breytingar er að styrkja framkvæmd endurreisnarstarfsins enn frekar nú þegar nær dregur þeim tímapunkti að ríkið leggi nýju bönkunum til nýtt eigið fé þegar samningum við kröfuhafa gömlu bankanna lýkur. Stýrihópurinn hefur fundað mjög ört og að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum í viku. Í stýrihópnum sitja, auk Mats Josefssonar, seðlabankastjóri, sem stýrir starfi nefndarinnar, fulltrúi forsætisráðuneytis og fjármálaráðuneytis auk aðstoðarmanna forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðherra. Mats Josefsson hefur því ekki sett nein skilyrði fyrir áframhaldandi starfi en hann hefur komið þeirri skoðun sinni skýrt á framfæri við stjórnvöld að það fyrirkomulag sem upphaflega var sett upp varðandi enduruppbyggingarstarfið í bankamálum hafi ekki verið eins skilvirkt og stefnt var að. Með nýju fyrirkomulagi í þessum málum er brugðist við þessum ábendingum Mats Josefssonar."
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira