Gengismunur krónu innan og utanlands minnkar 26. júní 2009 08:09
Síðustu viku hefur krónan styrkst gagnvart evru í viðskiptum á aflandsmarkaði en veikst lítillega í opinberum viðskiptum og því hefur heldur dregið úr mun á gengi evru gagnvart krónu á þessum tveimur mörkuðum. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Þar segir að síðastliðinn mánuð hefur munur á gengi krónunnar gagnvart evru á aflandsmarkaði og opinberu gengi Seðlabanka Íslands farið vaxandi en frá því í byrjun apríl þar til um miðjan maí dró mikið úr þessum mun. Ef miðað er við skráð gengi Seðlabankans hefur krónan veikst látlaust gagnvart evru síðan í byrjun mars. Gengi evru hefur þannig stigið úr um 141 krónum í tæpar 180 krónur, eða um rúm 27%. Aflandsgengið hefur hinsvegar sveiflast á þessu tímabili, frá 205 krónum upp í 300 krónur og stendur nú í 220 krónum. Þannig er aflandsgengi evru um 42 krónum hærra en gengi Seðlabankans í dag en munurinn var mestur 24. mars, 145 krónur. Fyrir hrun bankanna síðasta haust munaði mestu um 4 krónum á gengi evru á aflandsmarkaði og Seðlabankagengi. Raunar breikkaði bilið aðeins tvisvar svo mikið á öllu tímabilinu frá miðju ári 2006 og þar til í október, enda flæddi fjármagn frjálst milli Íslands og annarra landa á þessum tíma. Fáeinum dögum eftir fall bankanna fór aflandsgengið upp í 340 kr. á evru en lækkaði þó aftur á haustmánuðum. Mikil uppsveifla kom í aflandsgengi evru í mars eins og áður segir en það lækkaði síðan ört í aprílmánuði og hefur haldist á bilinu 200 - 220 krónur síðan í byrjun maí. Bent skal þó á að viðskipti með íslenskar krónur á aflandsmarkaði eru býsna stopul, eins og sést vel á myndinni hér að neðan, þar sem skráð aflandsgengi stendur í stað marga daga í röð, en það bendir til að viðskipti séu lítil eða engin.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira