Raungengi krónu nálgast sögulegt lágmark 5. ágúst 2009 17:13
Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,7% í júní og hefur það nú lækkað fimm mánuði í röð, samtals um 16,2% á því tímabili. Raungengi er mælt sem vísitala og hefur hún aðeins einu sinni verið lægri, í nóvember síðastliðnum, rétt eftir hrun íslensku viðskiptabankanna. Hagsjá Landsbankans greinir frá þessu í dag. Raungengi mælir gengi krónunnar miðað við hlutfallslegt verðlag hér á landi og erlendis í sömu mynt. Ýmsar ytri aðstæður geta valdið því að raungengi sveiflist töluvert en að til lengri tíma litið leiti það á ný í átt að langtíma jafnvægisgengi. Þó er ekkert því til fyrirstöðu að raungengi sé töluvert langt frá jafnvægisgengi í þónokkuð langan tíma.Tvennt getur orðið til þess að raungengi krónunnar hækki á nýjan leik Annað hvort þarf nafngengi krónunnar að styrkjast eða þá að almennt verðlag þarf að hækka hér á landi umfram viðskiptalönd. Blanda af hvoru tveggja verður að teljast líklegasta atburðarásin. Haldist nafngengi krónunnar óbreytt á næstu misserum má því reikna með að hækkun verðlags hér á landi umfram það sem gerist erlendis verði til þess að raungengi þokist í átt að langtímajafnvægi. Þó ber að hafa í huga að minnkandi eftirspurn í hagkerfinu dregur úr líkunum á því að gengisveiking krónunnar að undanförnu skili sér að fullu í verðhækkunum á innfluttum vörum og þjónustu.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira