Þjóðhagsáætlun 2010: Kaupmáttur rýrnar um 11,4% 6. október 2009 08:11
Reiknað er með 11,4% samdrætti ráðstöfunartekna árið 2010 en kaupmáttur þeirra aukist á nýjan leik frá árinu 2012 samkvæmt nýrri þjóðhagsáætlun forsætisráðuneytisins. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann mun þá hafa dregist saman um nærri fjórðung og vera í árslok 2011 álíka mikill og árið 2001. Í tilkynningu um áætlunina segir að efnahagsstefnan sem nú er fylgt mótast af þeim miklu erfiðleikum sem við er að glíma í íslensku efnhagslífi og byggist á tveimur meginþáttum. Annars vegar að koma Íslandi út úr dýpstu efnahagskreppu seinni ára eins fljótt og auðið er á forsendum norræns velferðarsamfélags. Hins vegar að koma í veg fyrir að slíkt áfall geti dunið yfir á nýjan leik. Hagkerfið hefur sýnt gríðarlega aðlögunarhæfni á því ári sem liðið er frá falli bankanna. Þrátt fyrir að veiking krónunnar hafi valdið mörgum fyrirtækjum og heimilum búsifjum þá bætir lágt raungengi samkeppnishæfi þjóðarbúsins svo um munar. Af því leiðir að vöruskipti hafa verið jákvæð frá því í september 2008 og þjónustujöfnuður var jákvæður á öðrum ársfjórðungi 2009. Áhættuálag á íslenskar fjáreignir hefur lækkað hratt og skuldatryggingarálag á ríkissjóð er nú aðeins um þriðjungur þess sem það var í ársbyrjun. Allir þessir þættir, ásamt hraðlækkandi verðbólgu á síðustu mánuðum ársins, munu mynda undirstöður fyrir aukinn stöðugleika og hagvöxt til framtíðar. Í ljósi gríðarlegs samdráttar innlendrar eftirspurnar hefur ríkissjóður verið rekinn með verulegum halla á yfirstandandi ári í því skyni að draga úr áhrifum efnahagskreppunnar. Skuldastaða ríkissjóðs er há í sögulegu og alþjóðlegu tilliti en á engan hátt óyfirstíganleg. Samkvæmt áætlun í ríkisfjármálum til ársins 2013 er gert ráð fyrir að ríkissjóður skili afgangi á nýjan leik við lok þess tímabils. Fjárlagafrumvarpið sýnir og sannar vilja ríkisstjórnarinnar til þess að ná nauðsynlegum árangri í ríkisfjármálum, en þó á forsendum félagslegs réttlætis og jafnaðar. Ríkisstjórnin stefnir að því að bankakerfið verði enn að mestu leyti í eigu einkaaðila, hvort sem það verður við yfirtöku fyrrverandi kröfuhafa bankanna eða með einkavæðingu þeirra síðar. Ólíkt því sem verið hefur undanfarin ár hyggst ríkissjóður þó enn um sinn eiga virkan hlut í fjármálakerfinu í gegnum Landsbankann. Slík aðferð var farin í Svíþjóð og Noregi í kjölfar fjármálakreppa fyrir tveimur áratugum. Eignarhlutir ríkissjóðs munu næstu árin vera í höndum Bankasýslunnar, sem sett hefur verið á fót að vel heppnaðri norskri fyrirmynd. Þeir eignarhlutar sem ríkissjóður eignast í sparisjóðunum verða fluttir í Bankasýsluna og gert er ráð fyrir að ríkið dragi sig út úr rekstri þeirra þegar aukinn stöðugleiki kemst á í hagkerfinu. Ríkisstjórnin telur einnig mikilvægt að styðja áfram við Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið með það að markmiði að stofnanirnar geti sinnt eftirlitshlutverkum sínum af meiri krafti en áður. Á næstu mánuðum verður svo tekin afstaða til þess hvort sameina eigi Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið á nýjan leik eða hvernig megi með öðrum hætti bæta samstarf þessara tveggja stofnana.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira