Töluverður munur á tillögum OECD og stjórnvalda um útgjöldin 6. október 2009 12:32
Töluvert ber í milli þegar kemur að tillögum OECD um niðurskurð og þeim áherslum sem lesa má úr fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar á því sviði. OECD telur til að mynda svigrúm vera til verulegs niðurskurðar á útgjöldum til heilbrigðis- og menntamála án þess að þessir málaflokkar þurfi að líða fyrir. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þessa skoðun sína byggir OECD á samanburði á gæðum opinberrar þjónustu og útgjöldum til málaflokkanna tveggja í aðildarlöndum OECD. Er það mat stofnunarinnar að hægt sé að minnka útgjöld til heilbrigðiskerfis um 17,5% og útgjöld til menntamála um fimmtung án þess að þjónustan versni að marki. Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að hlífa þessum málaflokkum meira en öðrum, og er samdráttur til menntastofnana sem annast kennslu 7% á milli ára en rekstur heilbrigðisstofnana er dreginn saman um 5%. Þá mælir OECD með að opinberir háskólar hafi möguleika á að innleiða skólagjöld fremur en skerða þjónustu úr hófi, og að svigrúm til einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu verði aukið. Engar hugmyndir virðast hins vegar uppi um slíkar breytingar hjá núverandi ríkisstjórn. OECD leggur til mikið aðhald í fjárfestingu hins opinbera, og að öllum fjárfestingum sem ekki eru bráðnauðsynlegar sé slegið á frest uns betur árar. Hér virðist ágætur samhljómur milli fjárlaga og stofnunarinnar, því stofnkostnaður og viðhald lækkar um ríflega 17 milljarða kr. milli ára í fjárlagafrumvarpinu. Hins vegar virðist ríkisstjórnin lítt hafa hlustað á þá ábendingu OECD að núverandi ástand gefi gott færi á að skera niður við trog dýrt og óhagkvæmt styrkjakerfi. Horfir stofnunin þar sér í lagi til landbúnaðarstyrkja. Framleiðendastyrkir til landbúnaðar hér á landi voru þeir hæstu á byggðu bóli árið 2007 að mati OECD, og ríflega tvöfalt hærri í hlutfalli við heildartekjur geirans en raunin var að jafnaði meðal landa ESB, svo dæmi sé tekið. Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir óbreyttum greiðslum vegna búvöruframleiðslu á milli ára, samtals 10,8 milljörðum kr.
Mest lesið Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira