Engar viðræður við AGS um upptöku evru 6. apríl 2009 10:59 Steingrímur J. Sigfússon.
Stjórnvöld hafa ekki átt í viðræðum við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um einhliða upptöku evru í stað íslensku krónunnar. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á Alþingi í dag þegar að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann út í trúnaðarskýrslu sem breska dagblaðið Financial Times komst yfir. Í skýrslunni leggur AGS til að aðildarríki Evrópusambandsins í Mið- og Austur-Evrópu, sem orðið hafa orðið hvað verst úti í fjármálakreppunni, leggi niður gjaldmiðla sína og taki þess í stað upp einhliða evru. Sigurður spurði Steingrím hvort að rætt hafi verið við fulltrúa AGS um upptöku evru og hvort ríkisstjórnin teldi einhliða upptöku gjaldmiðils mögulega. Steingrímur sagði að engar slíkur viðræður við fulltrúa AGS hafi átt sér stað. Hann benti á að staða Íslands samanborið við Evrópuríkin væri gjörólík. Sum ríkin væru nú þegar komin í Evrópusambandið og hefðu tengt gjaldmiðla sína við evru. Steingrímur sagði að það væri að valda þeim ríkjum miklum vanda. Sigurður gerði einnig nýlega ræðu Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, að umfjöllunarmáli sínu. Þar lýsti Obama því yfir að upptök fjármálakreppunnar mætti rekja til vandræða á húsnæðismarkaði í Bandaríkjunum. Sigurður vildi vita hvort að yfirlýsing Obama gæfi tilefni til viðræðna við stjórnvöld í Washington um aðgerðir á sviði efnahagsmála. Hann taldi einbúið að taka upp slíkar viðræður t.a.m. um gjaldeyrismál. Steingrímur sagði mikilvægt að íslensk stjórnvöld ættu gott samband við nýju ríkisstjórnina í Bandaríkjunum. Mörg athyglisverð mál væru á dagskrá ríkisstjórnar Obama. Steingrímur sagði að það skipti allan heiminn miklu máli að Obama takist vel upp.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira