Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara er 22% 24. júní 2009 11:56
Í þeim erfiðu aðstæðum sem nú ríkja á vinnumarkaði hefur atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara á innlendum vinnumarkaði aukist gríðarlega líkt og atvinnuleysi almennt. Þegar stuðst er við mat Vinnumálastofnunnar um að nálægt 9.000 erlendir ríkisborgarar séu nú á innlendum vinnumarkaði er ljóst að 22% atvinnuleysi ríkir nú meðal erlendra ríkisborgara. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta sé mun meira atvinnuleysi en almennt er í landinu en skráð atvinnuleysi er rúmlega 8%. Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hefur aukist gríðarlega frá bankahruni en í ágúst síðastliðnum var það innan við 2% og í byrjun árs tæplega 17%. Engan þarf að undra að ástandið á vinnumarkaði nú kemur harðar niður á erlendum ríkisborgurum. Kreppan hefur komið einna verst niður á þeim starfsgreinum þar sem þeir hafa verið umsvifamiklir í svo sem byggingariðnaði og mannvirkjagerð en ætla má rúmlega 3.000 störf hafi tapast í mannvirkjagerð frá því í október síðastliðnum. Hvorki meira né minna en 41% þeirra erlendu ríkisborgara sem voru skráðir án atvinnu hjá Vinnumiðlunum í síðasta mánuði störfuðu áður í mannvirkjagerð þannig að ljóst er að samdráttur í þeirri grein hefur haft gríðarlega mikið að segja um atvinnuhorfur hér á landi fyrir útlendinga. Þá er ljóst að aukið atvinnuleysi hér á landi hefur þau áhrif að heimamenn sækja nú í meiri mæli í störf sem áður var erfitt að ráða í góðæri undanfarinna ára var þenslan slík á vinnumarkaði að nánast þurfti að flytja inn fólk frá öðrum löndum til að manna störf við umönnum og þjónustu. Þetta m.a. gerir það að verkum að atvinnuleysi hefur aukist meira meðal erlendra ríkisborgara heldur en atvinnuleysi almennt á sama tíma. Í lok síðasta mánaðar voru 2.000 erlendir ríkisborgarar skráðir án atvinnu.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira