Viðskipti innlent

Kreditkortaveltan minnkaði um 5,6% í september

Heildarvelta kreditkorta í septembermánuði var 26,0 milljarðar kr. samanborið við 27,5 milljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 5,6% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir hinsvegar að heildarvelta kreditkorta jókst um 9,5% í september miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í september 31,4 milljarðar kr. og drógst saman um 9,4% frá fyrri mánuði. Sé heildardebetkortaveltan borin saman við sama tíma í fyrra þá hefur heildardebetkortaveltan dregist saman um 2,3 milljarða kr milli ára eða um 6,7%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×