Þjónustujöfnuður neikvæður um 2,9 milljarða 27. maí 2009 09:09
Útflutningur þjónustu á fyrsta ársfjórðungi er því samkvæmt bráðabirgðatölum 53,1 milljarður kr. og innflutningur þjónustu 56,0 milljarðar kr. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi er því neikvæður um 2,9 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á síðustu árum hafa komið fram æ ríkari óskir, jafnt alþjóðastofnana sem annarra notenda, um ítarlegri sundurliðun og landaskiptingu gagna um þjónustuviðskipti við útlönd en hingað til hefur verið unnt að birta. Seðlabanki Íslands hefur unnið gögn um þjónustuviðskipti að mestu út frá upplýsingum um gjaldeyrisviðskipti fyrirtækja sem fram fara í gegnum íslenska banka. Í þeim gögnum er ekki að finna mikla sundurliðun á þeirri þjónustu sem seld er eða keypt né heldur skiptingu þessara viðskipta eftir löndum. Niðurstöðurnar sem nú eru birtar fyrir fyrsta ársfjórðung 2009 munu að öllum líkindum breytast eftir því sem fyllri upplýsingar berast og verkinu vindur fram. Á þessari stundu er ekki unnt að birta ítarlega sundurliðun eftir tegund þjónustu né eftir löndum eins og ætlunin var. Stór fyrirtæki skila Hagstofunni gögnum fyrir fyrsta ársfjórðung 2009 en niðurstöður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á fyrsta ársfjórðungi 2009 eru metin út frá gögnum fyrir árið 2008. Í eðlilegu árferði er slíkt mat góð og gild aðferð, en þar sem miklar breytingar hafa orðið á umhverfi fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins má áætla að gögn fyrir 2008 séu ekki nógu góður grundvöllur til að meta niðurstöður fyrir árið 2009.Hagstofa hefur hins vegar leitað stoðar í öðrum gögnum, svo sem virðisaukaskattskrá, til að styrkja áætlun um þjónustuviðskipti lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira