Bankar mega ekki lenda í höndum auðmanna 16. apríl 2009 00:01 David O. Beim segir mikilvægt að tryggja dreifða eignaraðild að bönkum þegar þeir séu einkavæddir. Koma verði í veg fyrir að þeir lendi í höndum auðmanna. Sala banka til auðmanna eða lítils hóps fjársterkra aðila hafi ekki gengið vel í öðrum löndum, að hans sögn.
Það er ágæt hugmynd að selja bankana aftur. En það kann ekki góðri lukku að stýra að selja þá auðmönnum. Slíkt hefur ekki skilað góðum árangri í öðrum löndum, hvorki í Mexíkó né í Rússlandi fyrir áratug," segir David O. Beim, prófessor í hagfræði við Columbia-háskóla í New York í Bandaríkjunum. Beim, sem hefur rannsakað íslenska banka og efnahagslíf frá síðasta ári, segir bankana þrjá sem ríkið tók yfir í fyrrahaust hafa vaxið of hratt og þeir orðið of stórir, eða á við nífalda landsframleiðslu. Ríkið og Seðlabankinn hafi því ekki með nokkru móti getað komið þeim til hjálpar. Hann segir bankastarfsemi yfir höfuð afar sveiflukennda og því verði hið opinbera ávallt að vera reiðubúið að hlaupa undir bagga. Vöxtur íslensku bankanna hafi hins vegar verið orðinn slíkur þegar yfir lauk að ríkið hafi verið ófært um að koma þeim til bjargar. Hann bendir á að vöxtur bankanna hafi verið mistök og íslenskt efnahagslíf sé að gjalda fyrir þau nú. Beim flutti erindi um íslenskt efnahagslíf á fundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í síðustu viku um innviði íslenska efnahagskerfisins og framtíðarhorfur. Á meðal annarra ræðumanna voru Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og stjórnarformaður, hagfræðingurinn dr. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, Guðni A. Jóhannesson, forstjóri Orkustofnunar, og Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi. Beim segir mestu hættuna á því að selja auðmönnum fjármálafyrirtæki á borð við banka felast í því að hætta sé á að þeir misnoti aðstöðu sína og byggi upp veldi, auðhring með mikla en viðkvæma tengingu við bankann. „Það er fýsilegri kostur að dreifa eignarhaldinu og selja bankana mörgum fjárfestum, jafnvel erlendum aðilum," bætir Beim við. Spurður segist hann mótfallinn því að ríkið einkavæði hluta bankanna og sitji á hlut í þeim í áraraðir. Slíkt geti þó reynst mikilvægt til skamms tíma í einkavæðingarferlinu. Til lengri tíma litið eigi ríkið hins vegar að losa taumhaldið. varast skal venslaláninLánveitingar banka og fjármálafyrirtækja til tengdra aðila bjóða hættunni heim, að mati David Beims, sem bætir við að líklega sé erfitt að koma í veg fyrir slíkt í litlu hagkerfi á borð við það íslenska.Hann segir varasamt ef eigendur bankanna tengist stjórnendum fyrirtækja nánum böndum.Líkt og fram kom í Markaðnum fyrir hálfum mánuði stóðu lánveitingar til bankaráðsmanna Landsbankans, Kaupþings og Glitnis og félögum þeim tengdum í 110 milljörðum króna á fyrri hluta síðasta árs. Ekki mun þó hafa verið um bein fjárútlát að ræða að öllu leyti á árinu. Sem dæmi jókst verulega við lánveitingar tengdar Björgólfi Guðmundssyni, formanni bankaráðs Landsbankans, á fyrri hluta síðasta árs vegna yfirtöku félags í hans eigu á eignarhlutum í félögum sem voru í viðskiptum við bankann. Við það jókst ábyrgðin á hendur bankaráðsformanninum. Nýjar lánveitingar var því ekki um að ræða.Með sama hætti tengdust stjórnarmenn og varamenn þeirra hjá Kaupþingi nokkrum af umsvifamestu fyrirtækjum landsins. Lýður Guðmundsson, sem sæti átti í stjórninni, var á sama tíma stjórnarformaður Existu og Bakkavarar Group auk setu í stjórn tengdra félaga; Hjörleifur Jakobsson er forstjóri Kjalar, félags í eigu Ólafs Ólafssonar, eins af stærstu hluthöfum bankans fyrir bankahrunið. Hann er jafnframt stærsti eigandi Samskipa.Svipaða sögu mátti segja um Glitni. Þorsteinn Már Baldvinsson, sem til skamms tíma vermdi stól stjórnarformanns bankans, var á sama tíma forstjóri útgerðarfélagsins Samherja, auk þess sem Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group (nú Stoða), átti sæti í stjórn bankans. Beim segir mikilvægt að lánatengsl bankaráðsmanna og félaga þeim tengdum verði öll að vera uppi á borðinu og beri að varast að lánveitingar bankans til þeirra fari ekki út fyrir tiltekin mörk. allir skuldaHagfræðingurinn bandaríski segir Íslendinga geta unnið sig út úr kreppunni. Það verði krefjandi verk. Nauðsynlegt verði að vinda ofan af þeim skuldaklafa sem bæði einstaklingar og fyrirtæki hafi hlaðið ofan á sig.„Íslendingar eru almennt mjög vel menntaðir og færir um að búa til mikil verðmæti. En þið verðið að keyra skuldirnar niður," segir Beim og bendir á að það verði vart mögulegt nema með hefðbundnum aðferðum í bland við óhefðbundnar. Á meðal slíkra eru afskriftir lána og samningaviðræður um greiðslur krafna. Að þessu leyti eru Íslendingar þó ekki einir á báti. Beim bendir á landa sína máli sínu til stuðnings: Þeir hafi líkt og Íslendingar lifað um efni fram, fjármagnað neysluna með skuldum og séu að gjalda fyrir það nú. Svipuðu máli gegni um bankana en tilvist margra banka í Bandaríkjunum hafi færst inn í sögubækur síðustu mánuði. Því sé íslenska bankakreppan ekkert einsdæmi. kastið krónunniHvað krónuna varðar segir Beim hagfræðinga almennt sammála um að tiltölulega lítið hagkerfi á borð við það íslenska ætti ekki að flagga eigin gjaldmiðli. Erfitt sé að reiða sig á slíka mynt, sem geri fátt annað en að auka óstöðugleika hagkerfisins og þar með verðbólguna. Hún gefist í raun arfailla þar sem hún bæði ýki allar uppsveiflur og dýfur sömuleiðis. Hann segir ákjósanlegustu myntina þá sem vegi þyngst í utanríkisviðskiptum hér, það er þá sem mikilvægustu viðskiptalönd okkar hafi tekið upp. Nærtækast væri að taka upp evruna enda mælti flest til þess. Fátt mæli hins vegar fyrir um dollaravæðingu Íslands.
Markaðir Mest lesið Telja vegið að eignarrétti Sýnar Viðskipti innlent Örgleði (ekki öl-gleði) Atvinnulíf Framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka hættir Viðskipti innlent Sögðu upp öllum starfsmönnum Vélfags sem eftir voru Viðskipti innlent Ágreiningur í Peningastefnunefnd um síðustu vaxtalækkun Viðskipti innlent Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Viðskipti innlent Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Viðskipti innlent Pétur Freyr ráðinn framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna Viðskipti innlent Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Viðskipti innlent Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telja vegið að eignarrétti Sýnar Sögðu upp öllum starfsmönnum Vélfags sem eftir voru Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Verðbólga hjaðnar hressilega Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Pétur Freyr ráðinn framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna Kúabændur skora á ráðherra að falla frá breytingum Framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka hættir Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Sólveig Kolbrún og Harpa Björg til Iðunnar Vélfag áfrýjar dómnum Vill láta hart mæta hörðu Veipverslun fyllir í skarð veitingastaðar Stofnar félag um olíuleit Ríkið sýknað af kröfum Vélfagsmanna Fengið jákvæð viðbrögð frá Evrópusambandinu Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Makrílveiðimenn töpuðu baráttu sinni við ríkið Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Hjöðnun verðbólgu í sjónmáli Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna GK Reykjavík minnkar við sig Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Kristján lætur af störfum hjá Samherja Sjá meira