Búist við áframhaldandi lækkun fasteignaverðs 4. ágúst 2009 17:16
Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu var 5,8 milljarðar króna í nýliðnum júlímánuði samkvæmt upplýsingum Fasteignaskrár Íslands. Velta jókst um tæpan fjórðung frá fyrri mánuði en dróst að sama skapi saman um helming frá sama tíma árinu áður. Búist er við áframhaldandi lækkun fasteignaverðs. Þetta kemur fram í hagsjá Landsbankans. Það sem af er ári er velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu meira en helmingi lægri en á sama tíma í fyrra og tæpur fimmtungur af því sem var fyrstu sjö mánuði ársins 2007. Raunar hefur Fasteignaskráin ekki áður mælt svo litla veltu í janúar - júlí svo langt sem gögnin ná. Fjöldi kaupsamninga sem þinglýst var í mánuðinum jókst samanborið við fyrri mánuð en líkt og með veltuna voru þeir umtalsvert fleiri á sama tíma í fyrra. Fasteignamarkaðurinn virðist samkvæmt þessu enn vera að hægja á sér eftir mikinn uppgang undanfarin misseri. Fasteignaverð er hefur nú þegar lækkað um 13% að nafnvirði frá því að það náði hámarki í janúar 2008, en lækkun fasteignaverðs hefur svo aftur áhrif á mælingu á vísitölu neysluverðs þar sem húsnæðisliðurinn vegur nokkuð þungt. Lækkunin hefur þannig haldið aftur af verðbólgu síðustu mánuði eftir að hafa knúið hana áfram þegar fasteignaverð hækkaði hratt í uppsveiflunni sem átti sér stað á fasteignamarkaði á árunum 2004-2007. Enn má eiga von á frekari ládeyðu á fasteignamarkaði en margt bendir til þess að makaskiptasamningar dragi úr verðlækkun húsnæðisverðs um þessar mundir. Á meðan búist er við áframhaldandi verðlækkun á fasteignum má gera ráð fyrir að fólk í íbúðaleit haldi að sér höndum og fresti kaupum. Það verður því ekki fyrr en fólk í fasteignahugleiðingum telur botni náð að umsvif á þessum markaði eru líkleg til að glæðast á nýjan leik.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira