Greining: Spáir 9% ársverðbólgu í þessum mánuði 13. október 2009 12:01
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,5% í október. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 10,8% í 9%, enda dettur þá út úr 12 mánaða taktinum október á síðasta ári. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að í þeim mánuði hækkaði VNV um 2,1%. Síðustu dreggjar útsöluloka munu væntanlega lyfta verði á fötum og skóm nokkuð, ásamt öðrum varningi, og gerir greiningin ráð fyrir að VNV hækki um 0,2% vegna þessa. Þá eru enn að seytla inn í vöruverð áhrif af lækkun krónu á fyrri helmingi ársins. Í spánni er ráð fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar verði óbreyttur milli mánaða. Raunar eru vísbendingar af markaði frekar til þeirrar áttar að markaðsverð íbúðarhúsnæðis kunni að hafa hækkað milli mánaða en hitt. Hins vegar hefur eldsneyti lækkað nokkuð milli mánaða og hefur það áhrif til tæplega 0,1% lækkunar VNV að mati okkar. „Ársfjórðungurinn sem nú fer í hönd einkennist af því að í hverjum mánuði dettur út úr 12 mánaða verðbólgunni veruleg hækkun á VNV frá sama tímabili í fyrra. Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,5% á síðasta fjórðungi ársins 2008, en við gerum samtals ráð fyrir 1,1% hækkun VNV það sem eftir lifir árs," segir í Morgunkorninu. „Verðbólgan mun samkvæmt þessu hjaðna hratt og verða ríflega 6% í árslok. Hins vegar gæti slegið í bakseglin á fyrsta fjórðungi næsta árs, enda allar líkur á að hækkun vörugjalda og breytingar á virðisaukaskattkerfinu valdi talsverðri hækkun VNV í upphafi ársins. Frá og með öðrum fjórðungi næsta árs teljum við þó að í hönd fari tímabil lítillar hækkunar VNV og áætlum við að vísitalan hækki um rétt rúmlega 2% yfir árið 2010." Greining segir ennfremur að þeir þættir sem mesta óvissu skapa um spánna, þegar lengra er litið, eru gengisþróun krónu, hvernig aðstæður á vinnumarkaði kunna að þróast, hvenær húsnæðismarkaður tekur að rétta úr kútnum og hvort frekari hækkun óbeinna skatta sé í farvatninu eftir næstu áramót. „Við gerum ráð fyrir að krónan veikist lítillega fram á næsta ár en síðan taki við hægfara styrking. Á vinnumarkaði reiknum við með að stöðugleikasáttmála stjórnvalda og aðila vinnumarkaðr haldi í stórum dráttum, og að hækkun launa verði því hófleg á spátímanum. Þá teljum við að húsnæðisverð muni fara lækkandi fram undir lok næsta árs, en eftir það taki við hægfara hækkun," segir í Morgunkorninu. „Þótt samanlögð óvissa vegna þessara þátta sé vissulega afar mikil má segja að hún vegi til gagnstæðrar áttar meðal einhverra þeirra. Til að mynda má ætla að dýpki kreppan og dragist á langinn muni það leiða til frekari gengislækkunar krónu, en að á móti muni laun síður hækka og húsnæðisverð lækka meira en ella."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira